Árið 2015 voru heildarlaun fullvinnandi launamanna að meðaltali 612 þúsund krónur á mánuði en helmingur launamanna hafði 535 þúsund krónur eða meira. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti á fimmtudag.
„Munurinn skýrist af dreifingu launa þar sem hæstu laun hækka meðaltalið og kjarasamningar tryggja ákveðin lágmarkskjör en kveða ekki á um hámarkskjör. Fjórðungur launamanna var með 433 þúsund krónur eða minna í heildarlaun og tíundi hver launamaður var með lægri laun en 348 þúsund krónur fyrir fullt starf,“
segir í frétt Hagstofunnar. Þar segir einnig að rúmlega sjö prósent fullvinnandi launamanna á íslenskum vinnumarkaði voru með yfir milljón á mánuði í heildarlaun.