fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Steinar Berg stefnir Bubba: „Þetta hefur verið mér þungbært“

Stefnt vegna ummæla í þættinum Popp- og rokksaga Íslands sem var sýndur í mars

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. september 2016 14:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinar Berg Ísleifsson hefur höfðað meiðyrðamál á hendur Bubba Morthens og RÚV vegna ummæla Bubba í þættinum Popp- og rokksaga Íslands síðasta vetur.

Grunnt hefur verið á því góða milli Bubba og Steinars undanfarna mánuði og hafa þeir átt í orðaskaki, meðal annars á Facebook. Upphaf þessa ósættis má rekja til fyrrgreindra ummæla Bubba þar sem hann sagði að að útgáfufyrirtæki Steinars hefði grætt óeðlilega mikið á plötum Egó á sínum tíma og hljómsveitarmeðlimir fengið lítið fyrir sinn snúð.

Var Steinar ósáttur við þessi ummæli og sagði lítinn hagnað hafa verið af plötum sveitarinnar. Steinar sagði í samtali við DV í ágúst síðastliðnum að þessar ásakanir Bubba hafi verið sér þungbærar.

„Ég hélt ekki að ég myndi hrista þetta af mér. Þetta var ekki svoleiðis. Þetta hefur verið mér þungbært að vera með einhvern skítablett sem Bubbi klínir á mig og ég vil ekki hafa og er ósannur. Ég vil vera stoltur af mínum ferli, alla leið,“ sagði Steinar Berg og bætti við að hann myndi stefna Bubba og RÚV.

Nú hefur Bubba og RÚV verið birt stefnan, samkvæmt frétt mbl.is í dag. Ekki liggur fyrir hvenær málið verður tekið fyrir í héraðsdómi.

Eftir sýningu þáttarins í mars síðastliðnum gengu ásakanir þeirra á milli. Steinar sakaði Bubba um að gera tilraun til að sverta mannorð sitt á meðan Bubbi sagði að samningarnir sem gerðir voru á sínum tíma hefðu verið ömurlegir. Steinar Berg hefði verið í yfirburðastöðu og nýtt sér þá.

„Að halda því fram að enginn hagnaður hafi verið af þessum plötum er í besta falli útúrsnúningur. […] Við skrifuðum undir vegna þess að okkur langaði að gera plötur. Prósentur voru svívirðilegar lágar, fyrirtæki þitt nýtti sér reynsluleysi okkar.“

Í samtali við DV í ágúst sagði Steinar Berg að ásakanir Bubba væru rakalaus þvættingur. Og vildi hann að Bubbi myndi biðjast afsökunar. Steinar, sem rekur tónlistartengda ferðamennsku á Fossatúni í Borgarfirði, sagðist stöðugt áminntur á ásakanir Bubba.

„Ég er að vinna með mig og minn ferill á hverjum einasta degi hér í Fossatúni og hér er að gista mörg þúsund manns á ári og þau eru öll að koma hérna til að skoða þennan karl og sjá tónlistartenginguna. Ég er með vínylplötusafnið mitt og er stoltur af því sem ég hef gert en ég er stöðugt áminntur. Ég hélt ekki að ég myndi hrista þetta af mér. Þetta var ekki svoleiðis. Þetta hefur verið mér þungbært að vera með einhvern skítablett sem Bubbi klínir á mig og ég vil ekki hafa og er ósannur. Ég vil vera stoltur af mínum ferli, alla leið,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“