Mikið rætt um framboð Péturs – „Þetta er Temu-væðing stjórnmálanna“
FréttirÞað vakti athygli í gær þegar Pétur Marteinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og annar eigenda Kaffihúss Vesturbæjar, tilkynnti framboð sitt í oddvitasæti Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Mun Pétur þar berjast við Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra sem fram að tilkynningu Péturs hafði ein boðið sig fram í fyrsta sætið. Pétur hefur litla reynslu úr stjórnmálum, en Lesa meira
Vilhjálmur svaraði Samfylkingunni fullum hálsi: Ekki hægt að tala um að „planið sé að virka“
FréttirVilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinsambandsins, svaraði Facebook-færslu Samfylkingarinnar fullum hálsi í vikunni. Í henni var því haldið fram að „planið væri að virka“ og birt mynd af voldugri sleggju. Í færslu Samfylkingarinnar var bent á það að Seðlabankinn hefði lækkað stýrivexti fimm sinnum á einu ári, verðbólga sé sú minnsta frá 2020, halli á fjárlögum sé Lesa meira
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – missir Viðreisn fram úr sér
EyjanStóru tíðindin í nýrri skoðanakönnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka er að Viðreisn er orðin stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Fylgi beggja flokka er um 16 prósent en Viðreisn er með 16,1 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn með 15,9 prósent. Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að hríðfalla, lækkar um 2,7 prósentustig milli mánaða, á meðan Viðreisn hækkar um 1,8 prósentustig og Lesa meira
Segir ómaklegt að þrýsta á Samfylkinguna í máli rússnesku tvíburanna
FréttirHaukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir það ómaklegt að þrýsta á þingflokk Samfylkingarinnar í máli þriggja vikna gamalla tvíbura sem var vísað úr landi í síðustu viku ásamt foreldrum sínum og tveggja ára bróður. Haukur segir ljóst að hvorki þingflokkur Samfylkingarinnar né ráðherrar flokksins geti átt nokkra lögformlega aðkomu að málinu. Fjölskyldan er frá Dagestan sem tilheyrir Lesa meira
Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna
EyjanFastir pennarÞjóðarpúls Gallups í ágúst leiðir í ljós athyglisverðar niðurstöður sem hljóta að verða forystufólki stjórnmálaflokkanna mikið umhugsunarefni. Samfylkingin ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálaflokka og hefur aukið fylgi sitt frá kosningunum í nóvember um tvo þriðju, mælist nú með tæplega 35 prósenta fylgi en fékk tæplega 21 prósent í kosningunum. Svarthöfði þykist vita að Lesa meira
Ragnar Þór lætur Guðrúnu heyra það – „Til marks um rökþrota og kjánalegt viðhorf“
FréttirRagnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi formaður VR, segir að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætti að líta sér nær. Guðrún skaut föstum skotum að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í pistli á samfélagsmiðlum í morgun í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum. „Í aðdraganda kosninga hét forsætisráðherra því að hún myndi negla vextina niður Lesa meira
Orðið á götunni: Staksteinar tilkynna um flokksmálgagn
EyjanOrðið á götunni ert að Staksteinum sé æði oft kastað úr glerhúsi. Staksteinar er ritstjórnardálkur hjá Morgunblaðinu og flytur því boðskap ritstjórnar blaðsins. Í gær útnefndi þessi ritstjórnardálkur miðilinn DV sem „flokksmálgagn Viðreisnar.“ Þetta fannst okkur á DV skemmtilegt enda kannast enginn á ritstjórn DV eða stjórn útgáfufélags okkar við að DV sé flokksmálgagn eins Lesa meira
Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni
EyjanOrðið á götunni er að jarðarfararstemning sé nú í Valhöll við Háaleitisbraut. Ný skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd fyrir DV sýnir að fylgi flokksins í Reykjavíkurborg hefur hrapað á skömmum tíma og er Samfylkingin nú langstærsti flokkurinn í borginni. Fylgisaukning sem mældist í síðustu könnun er gufuð upp og tapar flokkurinn 6,3 prósentustigum milli kannana, mælist Lesa meira
Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“
EyjanOddný G. Harðardóttir, fyrrverandi þingkona og ráðherra, segir að hún hafi ekki verið látin vita af því að hún myndi taka við embætti fjármálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og VG árið 2011. Frétti hún fyrst af því þegar Jóhanna Sigurðardóttir tilkynnti það á þingflokksfundi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali sem Þórður Snær Lesa meira
Kolbrún segir borgina vera leiðtogalausa eftir brotthvarf Dags – Segir að hann eigi meira skilið frá Kristrúnu
FréttirKolbrún Bergþórsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi ritstjóri, segir að Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, sé einn af yfirburðarmanneskjum íslenskra stjórnmála. Kolbrún gerði meðal annars stöðuna í borgarmálunum að umtalsefni í pistli sínum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Eins og kunnugt er sleit Einar Þorsteinsson borgarstjóri meirihlutanum fyrir skemmstu og standa viðræður nú yfir um myndun nýs Lesa meira
