„Hversu langt þarf Rúv að ganga til að ganga fram af stjórnvöldum, þingi og þjóð?“
EyjanStaksteinahöfundur Morgunblaðsins skrifar um hegðun RÚV varðandi ráðningu nýs útvarpsstjóra, en stofnunin ætlar ekki að birta nöfn umsækjenda um stöðuna, eftir ráðleggingar Capacent, þó svo upplýsingalög kveði á um skyldu RÚV til þess en umsóknarfresturinn rennur út í dag. „Ríkisfréttastofan virtist telja þetta alveg sjálfsagt og sá ekki ástæðu til að spyrja út í lögmæti Lesa meira
Reykjavíkurborg fær uppreist æru hjá Ríkisendurskoðanda vegna RÚV skýrslu
EyjanReykjavíkurborg sendi frá sér tilkynningu í dag með athugasemdum sínum vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi RÚV, sem var talin brjóta gegn lögum. Reykjavíkurborg kemur við sögu í skýrslunni, vegna samninga við RÚV um lóðina að Efstaleiti 1, en samkvæmt tilkynningunni fékk Reykjavíkurborg ekki færi á að koma athugasemdum sínum á framfæri í skýrslunni. Hafa þær Lesa meira
Björn bregst ókvæða við gagnrýninni – Sakar fréttamenn RÚV um dulin markmið og líkir Samherjamálinu við barnaníðsklúður
EyjanBjörn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, hefur verið gagnrýndur fyrir viðbrögð sín í Samherjamálinu. Nefndi hann í pistli sínum eftir að málið kom upp, að Kveikur og Stundin hefðu gert „atlögu“ að Samherja, en mörgum þótti Björn taka upp hanskann fyrir Þorstein Má og Samherja að ósekju. Björn gagnrýnir gagnrýnina og minnist sérstaklega á skrif Sif Lesa meira
RÚV heldur fast í óvissukenninguna og hafnar skýringum ríkisendurskoðanda
EyjanBorist hefur yfirlýsing frá stjórn Ríkisútvarpsins vegna svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar. Áhöld hafa verið uppi um hvort einhver óvissa ríkti um að RÚV bæri að stofna dótturfélög utan um samkeppnisrekstur sinn, en ríkisendurskoðandi hafnaði óvissukenningu Kára Jónassonar, stjórnarformanns RÚV í morgun, líkt og Eyjan greindi frá. Sjá nánar: Ríkisendurskoðandi hafnar afsökun Kára – „Alveg skýr lagaskylda“ Lesa meira
Ríkisendurskoðandi hafnar afsökun Kára – „Alveg skýr lagaskylda“
EyjanSem kunnugt er skilaði Ríkisendurskoðun svartri skýrslu um RÚV í síðustu viku. Meðal þess sem kom fram var að RÚV hefði gert brotlegt við lög, þar sem engin dótturfélög höfðu verið stofnuð utan um samkeppnisrekstur þann er RÚV tekur þátt í. Stjórnarformaður RÚV, Kári Jónasson, taldi að einhver óvissa hefði þó ríkt um skyldu RÚV Lesa meira
Magnús Ragnars fagnar svartri skýrslu um RÚV – „Staðfestir það sem ég hef hrópað á torgum um árabil“
EyjanMagnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Símanum, fagnar svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi RÚV sem kom út í morgun. Segir hann það staðfestingu á því sem hann hafi bent á í mörg ár: „Ríkisendurskoðun staðfestir það sem ég hef hrópað á torgum um árabil, að stjórn og stjórnendur Ríkisútvarpsins brjóti lög sérhvern dag.“ Í skýrslunni kemur fram Lesa meira
Kveikur hafnar ásökunum Samherja og birtir öll samskipti sín við fyrirtækið
EyjanKveikur hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingum Samherja, um að RÚV hafi nálgast fyrirtækið á fölskum forsendum, er hafnað. Eru öll samskipti fréttamanna við Samherja birt einnig því til staðfestingar: Vegna fullyrðinga forstjóra Samherja hf. í fjölmiðlum um að RÚV hafi nálgast fyrirtækið á fölskum forsendum, hafnað fundarbeiðni og ekki sinnt hlutleysisskyldu sinni Lesa meira
Þorsteinn Már um RÚV: „Reyndu að nálgast okkur á fölskum forsendum“
EyjanÞorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir vinnubrögð RÚV einkennast af óheiðarleika vegna vinnslu fréttar sem sýnd verður í fréttaþættinum Kveik í kvöld, en Samherji gaf frá sér yfirlýsingu vegna málsins í gær vegna fyrrum starfsmanns Samherja í Namibíu sem borið hefur alvarlegar ásakanir á stjórnendur Samherja og er hann talin helsta heimild Kveiks. Í yfirlýsingunni Lesa meira
Brynjar vill aðskilnað – „Virðist einkum vera í því að eyðileggja einstaklinga og fyrirtæki“
EyjanBrynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það nauðsynlegt að aðskilja ríki og RÚV og það sé jafnvel brýnna en að aðskilja ríki og kirkju að fullu. Telur hann þjóðkirkjuna gera meira gagn en RÚV og sé ódýrari í rekstri einnig. Þá vegur hann þungt að fréttamönnum RÚV og sakar þá um að eyðileggja einstaklinga og fyrirtæki Lesa meira
Magnús Geir verður nýr þjóðleikhússtjóri
EyjanLilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Magnús Geir Þórðarson í starf þjóðleikhússtjóra. Skipanin gildir í fimm ár, frá og með 1. janúar 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu. Magnús Geir stundaði leikstjórnarnám við Bristol Old Vic Theater School (1994) og lauk M.A. gráðu í leikhúsfræðum frá University of Wales (2003). Magnús Geir Lesa meira