fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Pfizer

Yfirmenn hjá Pfizer með spá um framtíð kórónuveirunnar

Yfirmenn hjá Pfizer með spá um framtíð kórónuveirunnar

Pressan
20.12.2021

Enn eitt afbrigði kórónuveirunnar. Enn ein smitbylgjan. Enn einu sinni er gripið til sóttvarnaaðgerða. Flestir kannast nú orðið við atburðarás á borð við þessa og flestir eru orðnir ansi þreyttir á veirunni og heimsfaraldrinum og spyrja sig eflaust hvort og þá hvenær við náum hjarðónæmi. Nú hafa yfirmenn hjá bóluefnaframleiðandanum Pfizer sett fram spá um þróun faraldursins og hvað bíður Lesa meira

Peningarnir streyma inn – 130.000 krónur á sekúndu!

Peningarnir streyma inn – 130.000 krónur á sekúndu!

Pressan
20.11.2021

Nokkrir af stærstu framleiðendum bóluefna gegn kórónuveirunni moka inn peningum á sölu þeirra. Reiknað er með að tekjur þriggja framleiðenda verði 34 milljarðar dollara á árinu en það svarar til þess að þeir fái sem svarar til 130.000 íslenskra króna á sekúndu! Þetta eru niðurstöður greiningar fá People‘s Vaccine Alliance (PVA) sem eru samtök sem vinna að því að Lesa meira

Bólusetja Janssenfólkið með Pfizer eftir miðjan ágúst

Bólusetja Janssenfólkið með Pfizer eftir miðjan ágúst

Fréttir
27.07.2021

Þeir sem hafa verið bólusettir með bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni geta búist við að verða boðaðir í bólusetningu með bóluefninu frá Pfizer eftir miðjan ágúst. Fréttablaðið hefur þetta eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Við erum að skoða þetta en erum ekki búin að festa tíma,“ sagði hún. Hún sagði jafnframt að verið væri að skoða Lesa meira

Bandaríkin kaupa 200 milljónir skammta af bóluefni Pfizer til viðbótar

Bandaríkin kaupa 200 milljónir skammta af bóluefni Pfizer til viðbótar

Pressan
26.07.2021

Bandaríkjastjórn tilkynnti á föstudaginn að samið hefði verið um kaup á 200 milljónum skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech gegn kórónuveirunni til viðbótar fyrri kaupum. Skammtana á að nota til að gefa fólki þriðja skammtinn af bóluefninu og til að bólusetja börn. Helmingur af skömmtunum er til afhendingar fyrir árslok og hinn helmingurinn fyrir apríl á næsta ári. Þetta Lesa meira

Pfizer sækir um leyfi til að gefa þriðja skammtinn af bóluefninu gegn COVID-19

Pfizer sækir um leyfi til að gefa þriðja skammtinn af bóluefninu gegn COVID-19

Pressan
09.07.2021

Lyfjafyrirtækið Pfizer hyggst sækja um heimild hjá bandarísku lyfjastofnuninni til að gefa fólki þriðja skammtinn af bóluefni fyrirtækisins og BioNTech gegn COVID-19. Mikael Dolsten, rannsóknastjóri fyrirtækisins, skýrði frá þessu í gær. Bóluefnið er með neyðarleyfi í Bandaríkjunum og það þarf tvo skammta af því til að fólk teljist full bólusett. Dolsten sagði að með því að gefa þriðja skammtinn sé hægt að bregðast Lesa meira

Góðar og slæmar fréttir af virkni bóluefnisins frá Pfizer/BioNTech

Góðar og slæmar fréttir af virkni bóluefnisins frá Pfizer/BioNTech

Pressan
06.07.2021

Ísraelsk heilbrigðisyfirvöld birtu í gærkvöldi ný gögn um virkni bóluefnisins frá Pfizer/BioNTech gegn Deltaafbrigði kórónuveirunnar. Í þessum gögnum eru bæði góðar og slæmar fréttir. Slæmu fréttirnar eru þær að gögnin sýna að bóluefnið virkar ekki eins vel gegn Deltaafbrigðinu og öðrum afbrigðum veirunnar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að bóluefnið kemur að miklu leyti Lesa meira

Danir kaupa 1,17 milljónir skammta af bóluefni Pfizer/BioNTech af Rúmenum

Danir kaupa 1,17 milljónir skammta af bóluefni Pfizer/BioNTech af Rúmenum

Pressan
30.06.2021

Í gær var gengið frá samningi á milli danskra og rúmenskra yfirvalda um kaup Dana á 1,17 milljónum skammta af bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni. Reiknað er með að fyrstu skammtarnir komi til Danmerkur strax í þessari viku. Rúmenar ákváðu að selja bóluefnin því illa gengur að fá Rúmena til að láta bólusetja sig, mikil vantrú ríkir þar Lesa meira

Tvær lyfjaverksmiðjur fá leyfi til að framleiða bóluefni Pfizer gegn COVID-19

Tvær lyfjaverksmiðjur fá leyfi til að framleiða bóluefni Pfizer gegn COVID-19

Pressan
23.06.2021

Tvær lyfjaverksmiðjur, annars vegar í Þýskalandi og hins vegar í Sviss, fengu í gær leyfi Evrópsku lyfjastofnunarinnar, EMA, til að framleiða bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni. Önnur verksmiðjan er í Reinbek í Þýskalandi en hin er í Stein í Sviss. Þýska lyfjafyrirtækið Allergopharma á verksmiðjuna í Reinbek og Novartis þá í Stein. Verksmiðjurnar munu annast mismunandi hluta af framleiðsluferlinu. EMA reiknar með að verksmiðjurnar muni leggja Lesa meira

Ný rannsókn sýnir að bóluefni Pfizer veitir 95% vörn gegn kórónuveirunni

Ný rannsókn sýnir að bóluefni Pfizer veitir 95% vörn gegn kórónuveirunni

Pressan
07.05.2021

Tveir skammtar af bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni veita rúmlega 95% vörn gegn smiti, alvarlegum veikindum og dauða. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem byggir á gögnum frá 24. janúar til 3. apríl. Einn skammtur af bóluefninu veitir 58% vörn gegn smiti, 76% gegn sjúkrahúsinnlögn og 77% vernd gegn dauða. Sky News skýrir frá þessu og vitnar í rannsóknina sem hefur Lesa meira

Pfizer reiknar með að selja bóluefni fyrir 26 milljarða á árinu

Pfizer reiknar með að selja bóluefni fyrir 26 milljarða á árinu

Pressan
05.05.2021

Lyfjarisinn Pfizer reiknar með að selja bóluefni gegn COVID-19 fyrir 26 milljarða á árinu. Fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir sölu upp á 15 milljarða. Nýja áætlunin er byggð á sölusamningum sem hafa verið gerðir við fjölmörg ríki heims um kaup á bóluefninu. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri fyrirtækisins sem var birt á þriðjudaginn. Markmið fyrirtækisins er að Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af