Mynd
„Kínverjar reyna af öllum mætti að verða eina stórveldi heims, sama hvað það kostar“
Kínverjar njósna, stunda tölvuinnbrot og kúga fólk. Allt er þetta liður í að gera landið að eina stórveldi heims, bæði á tæknisviðinu og efnahagslega. Þessa mynd dró Christopher Wray, forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI, upp nýlega í samtali við hina íhaldssömu hugveitu Hudson Institute.