Mynd
Unglingur framdi tugi alvarlegra glæpa í fjölda landa - „Ég bjóst ekki við svona hörðum dómi“
Karlmaður sem er aðeins 18 ára gamall hefur verið dæmdur í fangelsi í Svíþjóð fyrir tugi alvarlegra glæpa sem hann framdi á aldrinum 15-17 ára. Meðal þeirra voru morðtilraunir og kynferðisofbeldi. Glæpina framdi ungi maðurinn í gegnum netið og náðu þessi fólskuverk hans til nokkurs fjölda annarra landa, auk Svíþjóðar.