fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Danmörk

Stefnir í „breiða“ ríkisstjórn í Danmörku

Stefnir í „breiða“ ríkisstjórn í Danmörku

Eyjan
24.11.2022

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, efndi til fréttamannafundar í gær til að ræða stöðu stjórnarmyndunarviðræðna en þær hafa staðið yfir í þrjár vikur. Frederiksen fékk umboð Margrétar Þórhildar, drottningar, til að kanna möguleikann á myndun nýrrar ríkisstjórnar og hefur rætt við fulltrúa allra þingflokka. Á fundinum í gær sagði hún að hún hafi fengið umboð drottningarinnar til að kanna Lesa meira

Ákærð fyrir að hafa myrt íbúa á dvalarheimili og að hafa reynt að myrða þrjá aðra

Ákærð fyrir að hafa myrt íbúa á dvalarheimili og að hafa reynt að myrða þrjá aðra

Pressan
23.11.2022

Kona, sem er nú fyrrverandi starfsmaður á Tirsdalen dvalarheimilinu í Randers, hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt einn íbúa dvalarheimilisins og fyrir að hafa reynt að myrða þrjá til viðbótar. Þetta reyndi konan sjö sinnum að því er saksóknari heldur fram í ákærunni. Er konan sögð hafa gefið fólkinu röng og hættuleg lyf. Danska ríkisútvarpið skýrir frá Lesa meira

Tvennt grunað í morðmálinu í Holbæk – Barnshafandi kona og barn hennar létust

Tvennt grunað í morðmálinu í Holbæk – Barnshafandi kona og barn hennar létust

Pressan
09.11.2022

24 ára afganskur karlmaður og 33 ára afgönsk kona voru í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á Sjálandi í Danmörku. Þau eru grunuð um aðild að morðinu á 37 ára afganskri konu á fimmtudaginn. Konan hafði nýlokið vinnu á dvalarheimili aldraðra í Holbæk og var nýsest í bílinn sinn þegar maður réðst á hana með hníf að Lesa meira

Barnshafandi kona var myrt í Danmörku fyrir sex árum – Í gær var ákæra gefin út á hendur meintum morðingja

Barnshafandi kona var myrt í Danmörku fyrir sex árum – Í gær var ákæra gefin út á hendur meintum morðingja

Pressan
09.11.2022

Í nóvember 2016 var Louise Borglit, 29 ára, myrt í Elverparken í Herlev í Kaupmannahöfn. Hún var stungin til bana. Hún var gengin sjö mánuði með barn sitt. Það lifði árásina ekki af. Rannsókn lögreglunnar á morðinu miðað lítið árum saman en í maí á þessu ári tilkynnti lögreglan að hún hefði handtekið meintan morðingja. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Lesa meira

Ólétt kona stungin til bana á götu úti í Danmörku – Barnið er á lífi

Ólétt kona stungin til bana á götu úti í Danmörku – Barnið er á lífi

Pressan
04.11.2022

37 ára kona var stungin til bana í Holbæk á Sjálndi seint í gærkvöldi. Hún var barnshafandi. Barnið er á lífi að sögn lögreglunnar. Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla þá var lögreglunni tilkynnt um árásina, sem átti sér stað á Samsøvej, klukkan 23.10. „Við fengum tilkynningu um yfirstandandi árás. Við komum fljótt á vettvang og fundum konuna sem var illa særð Lesa meira

Dramatískt kosningakvöld í Danmörku – Þetta eru sigurvegarar og taparar kosninganna

Dramatískt kosningakvöld í Danmörku – Þetta eru sigurvegarar og taparar kosninganna

Eyjan
02.11.2022

Klukkan átti skammt eftir í eitt í nótt að dönskum tíma þegar síðustu atkvæðin í þingkosningum gærdagsins höfðu verið talin. Óhætt er að segja að spenna hafi ríkt allt fram að síðustu tölum. Samkvæmt útgönguspám Danska ríkisútvarpsins (DR) og TV2, sem voru birtar þegar kjörstöðum var lokað klukkan 20, þá stefndi í að rauða blokkinn, vinstri Lesa meira

Fréttaskýring – Þingkosningar í Danmörku á morgun – Gríðarleg spenna

Fréttaskýring – Þingkosningar í Danmörku á morgun – Gríðarleg spenna

Eyjan
31.10.2022

Danir ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa til þings. Mikil spenna ríkir um úrslitin og segja margir stjórnmálafræðingar að erfitt sé að spá fyrir um úrslitin. Samkvæmt skoðanakönnunum þá munu hvorki rauð-blokk né blá-blokk ná meirihluta á þingi en til þess þarf 90 þingmenn. Rauð-blokk stendur aðeins betur að vígi og mældist með 83 Lesa meira

Friðrik krónprins styður ákvörðun móður sinnar – Vill „magurt konungsdæmi“

Friðrik krónprins styður ákvörðun móður sinnar – Vill „magurt konungsdæmi“

Pressan
28.10.2022

Það vakti mikla athygli og sterk viðbrögð hjá mörgum, aðallega Jóakim prins og fjölskyldu hans, þegar Margrét Þórhildur, Danadrottning, tilkynnti fyrir um mánuði síðan að börn Jóakims, sem er yngri sonur hennar, muni missa prinsa og prinsessutitla sína frá áramótum. Ákvörðunin féll í grýttan jarðveg hjá mörgum Dönum og var mikið fjallað um hana í Lesa meira

GPS lá niðri í danskri lofthelgi í 15 mínútur – „Eitthvað sem við sjáum venjulega á átakasvæðum“

GPS lá niðri í danskri lofthelgi í 15 mínútur – „Eitthvað sem við sjáum venjulega á átakasvæðum“

Fréttir
17.10.2022

Síðdegis þann 3. október síðastliðinn áttu flugvélar, sem flugu í danskri lofthelgi, í erfiðleikum með að ná sambandi við GPS-kerfið. Vandinn kom upp um klukkan 15. Á sama tíma áttu mörg skip einnig í vanda við að ná sambandi við kerfið. TV2 skýrir frá þessu og byggir á gögnum frá samgöngustofnuninni sem sjónvarpsstöðin fékk afhent á grundvelli Lesa meira

Nýjar reglur – Borgarstarfsfólk á ekki lengur að segja „pabbi“ og „mamma“

Nýjar reglur – Borgarstarfsfólk á ekki lengur að segja „pabbi“ og „mamma“

Pressan
08.10.2022

Framvegis á starfsfólk Kaupmannahafnarborgar að forðast að nota orð eins og „mamma“, „pabbi“, „lögreglumaður“ og „formaður“.  Þetta kemur fram í nýjum málfarsleiðbeiningum borgarinnar. Berlingske skýrir frá þessu. Fram kemur að leiðbeiningarnar hafi verið sendar til borgarstarfsmanna. Þetta er liður í því að viðurkenna borgarana eins og þeir eru að sögn blaðsins. Borgin segir að það geti Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af