Fegurðardrottning talin hafa myrt ungan son kærasta síns – „Við eigum erfitt með að trúa þessu“
FréttirÁtján ára fegurðardrottning, Trinity Poague að nafni, var handtekinn síðastliðinn föstudag í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Hún er grunuð um að hafa myrt eins og hálfs árs gamlan son kærasta síns. Þann 14. janúar síðastliðinn var komið með drenginn Jaxton Drew Williams á bráðamóttöku Phoebe Sumter sjúkrahússins í bænum Americus. En það er háskólabær sunnarlega í Lesa meira
Sigga skyr býður peninga fyrir „stafræna afeitrun“ – Farsímapása í einn mánuð
FréttirSiggi´s Dairy, skyrframleiðsla Sigurðar Hilmarssonar í Bandaríkjunum, hefur auglýst keppni í að sleppa farsímanotkun í einn mánuð. Heppnir vinningshafar fá tæpa eina og hálfa milljón krónur. „Við trúum á kraft þess að lifa einfaldara lífi með færri truflunum. Ein stærsta truflunin í lífi okkar er farsíminn. Þess vegna ögrum við ykkur að hætta að nota farsímann Lesa meira
Skotinn til bana vegna flögupoka
PressanStarfsmaður verslunar í borginni Humble, sem er úthverfi Houston, í Texas var skotinn til bana um hádegisbilið síðastliðinn föstudag þegar hann elti tvo menn út úr versluninni sem höfðu stolið einum poka af kartöfluflögum. Þjófarnir voru tveir en maðurinn elti þá á bifreið sinni. Verslunin er einnig bensínstöð en hinn látni var 42 ára gamall. Lesa meira
Fjölskyldufaðir flúði vettvang bílslyss – Aðgætti ekki með dóttur sína sem lést
FréttirMaður að nafni Elliot Binney frá Oklahoma var handtekinn í síðustu viku fyrir að skilja fjölskyldu sína eftir á vettvangi bílslyss. Sextán ára dóttir hans lést í slysinu. Huffington Post greinir frá þessu. Bíll fjölskyldunnar valt í borginni Bixby, nálægt Tulsa í austurhluta fylkisins, þann 11. janúar. Shelby Binney, hin sextán ára dóttir Elliot, þeyttist út úr bílnum en hún var ekki í bílbelti þegar slysið varð. Shelby var úrskurðuð Lesa meira
Manni í andnauð hent út úr sjúkrabíl
PressanMaður í Rochester í New York ríki, í Bandaríkjunum, var í andnauð þegar honum var hent út úr sjúkrabíl. Maðurinn hneig því næst niður á gangstétt og lést tveimur vikum síðar. Lögreglumenn liðsinntu bráðaliðum við að henda manninum út úr sjúkrabílnum. Atburðurinn átti sér stað 30. nóvember síðastliðinn og var tekinn upp á búkmyndavélar lögreglumanna. Lesa meira
Ólafur Þ. Harðarson: Hefði aldrei trúað því að maður hefði raunverulegar áhyggjur af því að lýðræðið í Bandaríkjunum kynni að líða undir lok
EyjanOrðræða þjóðernislýðhyggjumanna á borð við Donald Trump er óhuggulega lík því sem var hjá nasistum og fasistum í Evrópu á fjórða áratug síðustu aldar og bandaríski Repúblikanaflokkurinn er gjörbreyttur frá því sem var fyrir 20-30 árum, segir Ólafur Þ. Harðarson, fyrrverandi prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann telur samt að pendúllinn í Evrópu sé að einhverju leyti farinn Lesa meira
Trump notar kunnuglega taktík gegn sínum helsta keppinaut
EyjanDonald Trump, fyrrverandi forseti og núverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, reyndi á sínum tíma að halda á lofti þeirri kenningu að Barack Obama, forveri hans á forsetastóli, hefði falsað fæðingarvottorð sitt og væri ekki fæddur í Bandaríkjunum. Slíkar fullyrðingar eru rangar en Obama fæddist á Hawaii sem tilheyrir Bandaríkjunum en samkvæmt bandarísku stjórnarskránni verður forseti landsins Lesa meira
Leitaði að dóttur sinni í 19 ár – Þá varð kúvending í málinu
PressanÞann 17. maí 2001 tilkynnti Michael Turney um hvarf dóttur sinnar. Þetta var síðasti skóladagurinn fyrir sumarfrí hjá hálfsystrunum Sarah og Alissa Marie Turney sem áttu heima í Phoenix í Arizona. Alissa hafði haldið upp á 17 ára afmæli sitt mánuði áður en Sarah var 12 ára. Á þessum gleðilega degi, sem síðasti skóladagurinn átti að vera, hvarf Alissa og hefur ekki sést síðan. Móðurmissir Alissa fæddist í apríl Lesa meira
Kennari braut á unglingsdreng – Vildi svipta hann sveindómnum
PressanKona sem hefur starfað sem kennari í Louisiana í Bandaríkjunum er sökuð um að hafa sent 15 ára dreng nektarmyndir og að hafa brotið kynferðislega gegn honum í bíl sínum þar sem barn hennar var viðstatt. Er hún sögð hafa lýst áhyggjum sínum við drenginn af því að hún yrði ekki fyrsta konan sem hann Lesa meira
Þakkar uppáhalds drykk Forrest Gump langlífið
FókusEugene Petersen, fyrrverandi liðþjálfi í bandaríska landhernum, hélt upp á 101 árs afmælið sitt í herstöð í Kaliforníu í gær. Hann þakkar tilteknum gosdrykk langlífið en svo vill til að um er að ræða uppáhalds gosdrykk bókmenntapersónunnar Forrest Gump sem leikarinn Tom Hanks gerði ódauðlegan í samnefndri kvikmynd. Í umfjöllun CBS kemur fram að dóttir Lesa meira
