fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Eric Cantona tekur þátt í stóru verkefni á Íslandi

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 09:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franski fótboltakappinn Eric Cantona er á meðal leikara í kvikmynd sem nú er í tökum á Hólmavík. Frá þessu er greint á vefmiðlinum Husavik.com.

Um er að ræða alþjóðlegt kvikmyndaverkefni sem stór hópur erlendra og íslenskra kvikmyndagerðarmanna tekur þátt í.

Myndinni er leikstýrt af Baskanum Mikel Aguirresarobe en ef marka má IMDB.com er söguþráður myndarinnar athyglisverður í meira lagi.

„Koldo er fenginn til að kaupa þorskvinnslufyrirtæki í Hólmavík og kemur þangað aðeins nokkrum dögum áður en Ísland hyggst afnema lög sem hafa heimilað dráp á Böskum frá árinu 1615.“

Auk Cantona fara með helstu hlutverk Sergio Peris-Mencheta og Ingrid García-Jonsson. Þá fara Íslendingar einnig með hlutverk í myndinni, til dæmis Sigurður Sigurjónsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Björn Stefánsson og Hannes Óli Ágústsson.

Á vef Husavik.com er rætt við Ingibjörgu Benediktsdóttur, sveitarstjórnarfulltrúa í Norðurþingi sem á ættir að rekja til Hólmavíkur. Hún segir verkefnið hafa vakið mikla athygli í sinni gömlu heimabyggð.

„Þetta er stórt verkefni og mikil stemning í kringum það,“ segir Ingibjörg. „Það er alltaf spennandi þegar alþjóðleg kvikmyndagerð kemur til svona lítilla staða, og það getur haft jákvæð áhrif langt fram í tímann.“

Eric Cantona gerði garðinn frægan hjá Manchester United og franska landsliðinu. Hann varð fjórum sinnum Englandsmeistari með liðinu og var valinn leikmaður ársins í ensku deildinni árið 1994. Eftir að hann lagði skóna á hilluna hefur hann leikið í fjölmörgum kvikmyndum og virðist hvergi nærri hættur á því sviði.

Hér má lesa nánar um málið.

Eric Cantona fagnar marki.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra