fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
433Sport

Reykjavíkurmótið: Óskar Örn með þrennu er KR vann Fjölni – Víkingar unnu stórsigur á Þrótti

Aron Guðmundsson
Þriðjudaginn 19. janúar 2021 21:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrir leikir fóru fram í Reykjavíkurmóti karla í kvöld. KR vann Fjölni og þá unnu Víkingur R. stórsigur á Þrótti R. Lestu um öll úrslit kvöldsins hér.

Í B-riðli tók KR á móti Fjölni á gervigrasvelli sínum í Vesturbænum. Leikurinn endaði með 3-2 sigri KR þar sem að Óskar Örn Hauksson gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk Vesturbæinga. KR er eftir leikinn í 2. sæti riðilsins með 6 stig úr tveimur leikjum. Fjölnir er í 3. sæti með 0 stig.

Í hinum leik B-riðils tók Fylkir á móti Fram í Árbænum. Leikurinn endaði með 3-2 sigri heimamanna. Staðan var 2-2 áður en að Hákon Ingi Jónsson skoraði sigurmark Fylkis á 62. mínútu. Fylkir er eftir leikinn í 1. sæti riðilsins með 6 stig eftir tvo leiki. Fram er í 4. sæti með 0 stig.

Í A-riðli mættust Þróttur R. og Víkingur R. á Víkingsvelli. Staðan var 3-1 fyrir Víkinga er flautað var til hálfleiks, Víkingar bættu síðan við þremur mörkum í síðari hálfleik. Leikurinn endaði með 6-1 stórsigri Víkinga sem eru eftir leikinn í 2. sæti riðilsins með 3 stig eftir tvo leiki. Þróttarar eru í 5. sæti með 0 stig.

Í hinum leik A-riðils var Breiðholtsslagur er ÍR tók á móti Leikni R. Viktor Marel Kjærnested tryggði Leiknismönnum sigur með eina marki leiksins á 41. mínútu. Leiknir er eftir leikinn í 3. sæti riðilsins með 3 stig. ÍR er í 4. sæti með 0 stig.

A-riðill 
Þróttur R. 1 – 6 Víkingur R.
0-1 Helgi Guðjónsson (’14)
0-2 Nikolaj Andreas Hansen (’23)
1-2 Daði Bergsson (’38)
1-3 Nikolaj Andreas Hansen (’45)
1-4 Erlingur Agnarsson (’66)
1-5 Sigurður Steinar Björnsson (’78)
1-6 Tómas Guðmundsson (’90+1)

ÍR 0 – 1 Leiknir R. 
0-1 Viktor Kjærnested (’41)

B-riðill 
KR 3 – 2 Fjölnir  

0-1 Viktor Andri Hafþórsson (’24)
1-1 Óskar Örn Hauksson (’32)
1-2 Arnór Breki Ástþórsson (’41)
2-2 Óskar Örn Hauksson (’52)
3-2 Óskar Örn Hauksson (’81)

Fylkir 3 – 2 Fram 
0-1 Albert Hafsteinsson (‘1)
1-1 Óskar Borgþórsson (’25)
2-1 Orri Hrafn Kjartansson (’45+2)
2-2 Aron Snær Ingason (’48)
3-2 Hákon Ingi Jónsson (’62)

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Amorim virðist áhyggjufullur: ,,Við munum lenda í vandræðum“

Amorim virðist áhyggjufullur: ,,Við munum lenda í vandræðum“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Slot: „Þetta eru mikil vonbrigði“

Slot: „Þetta eru mikil vonbrigði“
433Sport
Fyrir 3 dögum

Vilja stela Johnson fyrir framan nefið á Palace

Vilja stela Johnson fyrir framan nefið á Palace
433Sport
Fyrir 3 dögum

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af