fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025

,,Frábært og einstaklega skemmtileg upplifun“

Gunnar Bender
Fimmtudaginn 4. júní 2020 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Þetta var frábært og einstaklega skemmtileg upplifun. Við þurtfum að hafa talsvert fyrir þessu, hlupum nánast á eftir honum en þetta hafðist allt saman að lokum,“ sagði Vilborg Halldórsdóttir er hún landaði maríulaxinum á Brotinu í Norðurá í morgun.

Veiðin í Norðurá hófst snemma í morgun en þau hjónin Helgi Björnsson, söngvari, og konan hans Vilborg Halldórsdóttir opnuðu ána með formlegum hætti eins og sagt er. Veiðin fór rólega af stað en upp úr níu fóru hlutirnir að gerast og fljótlega voru komnir fimm laxar á land. Það verður spennandi að sjá hvernig veiðin þróast í Norðurá en byrjunin gefur góð fyrirheit.

Þó nokkur fjöldi fólks fylgdist með þegar veiðin hófst í morgun og óhætt að segja að spenna hafi verið í loftinu. Opnun Norðurár markar ákveðin tímamót en þarna má segja að veiðin hefjist fyrir alvöru ár hvert. Margir bíða spenntir eftir veiðisumrinu en margar ár opna hver af annarri á næstu dögum.

Á myndinni er Vilborg Halldórsdóttir með maríulaxinn sinn og henni til aðstoðar er Þorsteinn Stefánsson.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Kjartan Már keyptur til Skotlands

Kjartan Már keyptur til Skotlands
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Stelpurnar í fríi síðdegis – Sveindís og Holding sáust á rölti um miðbæinn

Stelpurnar í fríi síðdegis – Sveindís og Holding sáust á rölti um miðbæinn
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir