,,Það var gaman að veiða fyrsta laxinn í Tungufljótinu þetta árið,“ sagði Magnús Þór Sigmundsson í samtali við Veiðipressuna en veiðin er að byrja þar eins og víðast annarsstaðar þessa dagana.
,,Það tók tíu mínútur að landa fisknum. Hann reyndist vera 7 punda og 65 sentimetrar. Ég vigtaði hann ekki en hann er kominn í góðan stað í frystikistunni. Þetta var afbrigði af Sun Ray, vafinn með silfur bandi á kúluhaus sem hann tók,“ sagði Magnús ennfremur um fyrsta laxinn í fljótinu þetta árið.
Mynd. Magnús Þór Sigmundsson með laxinn úr Tungufljóti.