fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Pressan

Tesla bindur vonir við nýjan bíl með engu stýri og engum pedölum

Pressan
Föstudaginn 13. mars 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur hafið framleiðslu á Cybercab, sjálfkeyrandi bíl sem hvorki er búinn stýri né pedölum.

Tesla telur að Cybercab sé lykilþáttur í næsta vaxtarskeiði fyrirtækisins og muni marka þáttaskil í umbreytingu fyrirtækisins frá hefðbundnum bílaframleiðanda yfir í fyrirtæki á sviði gervigreindar- og vélmennatækni.

Cybercab er fyrsti nýi bíll Tesla frá því Cybertruck kom á markað, en samkvæmt heimildum Wall Street Journal er framleiðsla þegar hafin í verksmiðju fyrirtækisins í Austin í Texas. Stefnt er að því að fjöldaframleiðsla á bílunum geti hafist strax í apríl.

Bíllinn er hannaður þannig að svokallaður Full Self-Driving-hugbúnaður mun sjá um allt sem við kemur akstrinum. Er bílnum einnig ætla að gegna lykilhlutverki í fyrirhuguðu neti sjálfkeyrandi leigubíla.

Elon Musk, forstjóri Tesla, hefur gefið í skyn að Cybercab gæti jafnvel kostað undir 30 þúsund Bandaríkjadölum – 3,8 milljónum króna á núverandi gengi.

Fyrirtækið hyggst framleiða nokkur hundruð bíla á viku til að byrja með, en Musk hefur þó varað við því að framleiðslan verði hæg fyrst um sinn. Til lengri tíma litið er markmiðið að framleiða allt að tvær milljónir bíla árlega.

Áður en Cybercab kemst í almenna sölu þarf Tesla þó að fá samþykki eftirlitsaðila. Þar sem bíllinn er án stýris, pedala og hliðarspegla þarf bandaríska umferðaröryggisstofnunin að veita sérstaka undanþágu.

Ólíkt flestum öðrum tilraunum með sjálfkeyrandi leigubíla er enginn handvirkur neyðarstýringarmöguleiki í Cybercab. Ef hugbúnaðurinn bregst hefur farþegi því enga möguleika á að taka stjórn.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla er haft eftir greiningaraðilum að þeir telji líklegt að fyrstu eintökin verði fyrst og fremst notuð í Robotaxi-þjónustu Tesla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi