fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Pressan
Föstudaginn 27. júní 2025 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvorki rósir, rómantískar helgarferðir eða djörf tjákn geta bjargað ástarsambandi ef nándin er horfin úr því. Kynlífsfræðingar segja að „kynlífslaust samband“ sé samband þar fólk stundar kynlíf sjaldnar en tíu sinnum á ári og slíkt er mun algengara en fólk heldur.

En lausnin er ekki alltaf kynlíf, þvert á móti.

Hér á eftir fylgja nokkur ráð sem geta hugsanlega kveikt neistann á nýjan leik.

Hættu alveg að stunda kynlíf (um hríð) – Já, þú last rétt. Ef kynlífið er farið að vera vélrænt eða kvöð, þá er kominn tími til að taka sér hlé frá því. Dr Justin Lehmiler, hjá Kinsey Institute, ráðleggur fólki að einbeita sér að líkamlegri nánd án þess að vænta neins. Þetta getur verið nudd, snerting, knús og að gleyma öllu varðandi „nú ríðum við orkuna“. Þetta snýst um að endurbyggja tenginguna og öryggið, án þess að nokkrum finnist hann þurfa að sýna einhverja ákveðna frammistöðu.

Endurnýjaðu fyrsta ástarblossann – Hvað var það fyrsta sem þú féllst fyrir? Hvernig var lyktin? Hvernig brosti hún/hann? Daðraðu eins og þú sért á fyrsta stefnumóti er ráð Peter Saddington, meðferðarráðgjafa. Hann ráðleggur fólki að sleppa því að vera í heimafötunum og að prumpa yfir sjónvarpinu. Hann segir að fólk eigi að reyna að finna sjarmann aftur í smáatriðunum, gælunöfnum og þess lags.

Skipulegðu kynlífið – Kynlíf, sem hefst algjörlega óundirbúið, er frábært en sjaldgæft. Þegar börn, starfsframi og fleira er á dagskránni, þá er bara ein lausn – Taktu frá tíma til að stunda kynlíf.  Saddington segir að það verði ekki leiðinlegt fyrir vikið, þetta sé bara nauðsynlegt. Með því að taka frá ákveðinn tíma fyrir kynlíf, setja pör hvort annað í forgang og það er mikilvægt.

Sýndu ástríki án þess að hafa kynlíf í huga – Hættu að snerta makann eingöngu þegar þú vilt kynlíf. Koss á kinnina, snertu mittið, hrósaði makanum hreinskilnislega, allt án þess að hafa kynlíf í huga. Þetta er leiðin til að brjóta ísinn.

Skiptist á að vera sjálfselsk – Gefið hvort öðru leyfi til að hafa „nú er komið að mér, nú er komið að þér“ kvöld. Stundum ert það þú sem þiggur og stundum er það makinn sem þiggur. Þetta gerir út af við væntingar og nándin verður leikur og örugg, frekar en bókhald yfir „hver veitti hvað og hvenær“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjöldi ríkra Bandaríkjamanna sækir um „gyllta vegabréfsáritun“ á Nýja-Sjálandi

Fjöldi ríkra Bandaríkjamanna sækir um „gyllta vegabréfsáritun“ á Nýja-Sjálandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndu að setja brúðkaup á svið í Disneylandi – Starfsmenn hringdu í lögregluna þegar þeir sáu brúðina

Reyndu að setja brúðkaup á svið í Disneylandi – Starfsmenn hringdu í lögregluna þegar þeir sáu brúðina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna