fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Svona lengi halda karlmenn að meðaltali út í kynlífinu

Pressan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir karlmenn hafa hugsað um þetta en fáir tala upphátt um þetta: Hversu lengi stendur kynlíf að meðaltali? Er þá átt við tímann sem líður frá því að getnaðarlimurinn er settur inn í leggöngin þar til karlinn fær sáðlát.

Ef þú heldur að þetta snúist um einhverskonar maraþon, þá þarftu eitthvað að endurskoða væntingar þínar.

Margar rannsóknir hafa verið gerðar á því hversu lengi samfarir standa. Í einni stærstu rannsókninni voru 500 pör, frá ýmsum löndum, fengin til að nota skeiðklukkur til að mæla hversu langur tími leið frá því að limurinn var settur inn í leggöngin og þar til karlinn hafði sáðlát.

Niðurstaðan var að meðalsamfarirnar standa í 5,4 mínútur.

Í annarri rannsókn kom í ljós að karlar haldi að meðaltali út í 5 til 7 mínútur eftir að limurinn hefur verið settur inn í leggöng. Forleikur eða önnur form kynlífs eru ekki tekin með í þessum mælingum.

En hvað er eðlilegt í þessum efnum?

Kynlífsfræðingar hafa reynt að flokka lengd samfara:

1-2 mínútur – Of stutt.

3-7 mínútur – Ásættanlegt.

7-13 mínútur – Æskilegt.

10-30 mínútur – Of langt.

Þessir flokkar eru auðvitað bara leiðbeinandi og rétt er að hafa í huga að lengd samfara getur verið háð því hvað hver og einn vill og aðstæðunum hverju sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgáta við strendur Mallorca – Ferðamenn fundu lík sem voru hlekkjuð á höndum og fótum

Ráðgáta við strendur Mallorca – Ferðamenn fundu lík sem voru hlekkjuð á höndum og fótum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harry réttir fram sáttaboð til föður síns með tveggja ára fyrirvara

Harry réttir fram sáttaboð til föður síns með tveggja ára fyrirvara
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rolex-málið og systurnar

Rolex-málið og systurnar