fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Æðstiklerkurinn rýfur þögnina – Lýsir yfir sigri gegn Ísrael og sakar Trump um að ýkja árangur árása Bandríkjanna

Pressan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 11:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Æðstiklerkur Írans, Ayatollah Ali Khamenei, hafði látið lítið fara fyrir sér síðan að Bandaríkin gerðu sprengjuárás á kjarnorkurannsóknarstöðvar Írans aðfaranótt sunnudags. Hann hefur nú rofið þögnina en hann ávarpaði þjóð sína í dag á íranska ríkismiðlinum. AP-fréttastofan tekur fram að það hafi verið áberandi í útsendingunni að Khamenei virtist töluvert þreytulegri en þegar seinast sást til hans opinberlega fyrir viku síðan. Engu að síður lýsti æðstiklerkurinn yfir sigri gegn Ísrael.

Khamenei sagði áhorfendum að greinilega hafi Íran gengið svo vel í átökunum við Ísrael að Bandaríkin hafi neyðst til að skipta sér af svo ekki færi illa fyrir Ísraelum. Bandaríkin hafi þó ekki grætt neitt annað á afskiptunum en löðrung í andlitið. Khamenei tók þó skýrt fram að ef Bandaríkin ráðast aftur á Íran þá muni þau gjalda það dýrum dómi. Réttlæting Bandaríkjanna á árásinni haldi engu vatni, tilgangurinn sé augljóslega aðeins einn – að knýja fram uppgjöf Írans.

„Fyrir jafn frábæra þjóð á borð við Íran er tilhugsunin um uppgjöf móðgun,“ sagði Khameinei sem segir forseta Bandaríkjanna ýkja árangur árásanna.

„Bandaríski forsetinn gaf til kynna í einni yfirlýsingu sinni að Íran þurfi að gefast upp. Gefast upp! Svo þetta er ekki lengur spurning um auðgun úrans, ekki lengur spurning um kjarnorkuiðnaðinn heldur um uppgjöf Írans. Slíkt mun aldrei eiga sér stað. Aldrei.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt
Pressan
Í gær

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna