Liðsmenn hryðjuverkahópa af þessu tagi lifa í raun ósköp venjulegu lífi í Bandaríkjunum og láta lítið fyrir sér fara. En dag einn kemur kallið kannski og þá þurfa þeir að láta til skara skríða gegn Bandaríkjunum.
FBI hefur hert eftirlitið með hugsanlegum írönskum hryðjuverkamönnum og/eða njósnurum því óttast er að Íranar muni virkja þessa hópa núna.
Áður en Bandaríkin gerðu árásina á Íran, hafði Kash Pate, forstjóri FBI, bætt í aðgerðir FBI hvað varðar eftirlit með „sofandi útsendurum“ frá Hezbollah hryðjuverkasamtökunum en þau njóta stuðnings Írana.