Ef þú heldur að þetta snúist um einhverskonar maraþon, þá þarftu eitthvað að endurskoða væntingar þínar.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á því hversu lengi samfarir standa. Í einni stærstu rannsókninni voru 500 pör, frá ýmsum löndum, fengin til að nota skeiðklukkur til að mæla hversu langur tími leið frá því að limurinn var settur inn í leggöngin og þar til karlinn hafði sáðlát.
Niðurstaðan var að meðalsamfarirnar standa í 5,4 mínútur.
Í annarri rannsókn kom í ljós að karlar haldi að meðaltali út í 5 til 7 mínútur eftir að limurinn hefur verið settur inn í leggöng. Forleikur eða önnur form kynlífs eru ekki tekin með í þessum mælingum.
En hvað er eðlilegt í þessum efnum?
Kynlífsfræðingar hafa reynt að flokka lengd samfara:
1-2 mínútur – Of stutt.
3-7 mínútur – Ásættanlegt.
7-13 mínútur – Æskilegt.
10-30 mínútur – Of langt.
Þessir flokkar eru auðvitað bara leiðbeinandi og rétt er að hafa í huga að lengd samfara getur verið háð því hvað hver og einn vill og aðstæðunum hverju sinni.