fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Norður-Kórea sendir 5.000 byggingaverkamenn til Rússlands

Pressan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 08:30

Mynd sem Úkraínumenn birtu af norður-kóreskum hermanni á vígstöðvunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norður-Kórea ætlar að senda 5.000 byggingaverkamenn, úr hernum, til Kúrsk í Rússlandi til að aðstoða við uppbyggingu héraðsins eftir hernám Úkraínumanna á því. Sergei Shoigu, öryggisráðgjafi Vladímír Pútín, skýrði frá þessu.

Þessu til viðbótar verða 1.000 norðurkóreskir verkfræðingar, frá hernum, einnig sendir til Kúrsk.

The Independent skýrir frá þessu og segir að Shoigu hafi sagt að mennirnir muni aðstoða við endurbyggingu héraðsins. Úkraínumenn réðust inn í það í ágúst á síðasta ári og það var ekki fyrr en á þessu ári sem Rússum tókst að hrekja þá þaðan að mestu.

Shoigu ræddi þetta mál við Kim Jong Un, einræðisherra í Norður-Kóreu, á fundi í síðustu viku. Fundurinn fór fram í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, í tengslum við heimsókn Shoigu þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna