fbpx
Fimmtudagur 08.maí 2025
Pressan

Robert Prevost er fyrsti bandaríski páfinn – Valdi sér nafnið Leó XIV

Pressan
Fimmtudaginn 8. maí 2025 17:22

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski kardínálinn Robert Prevost hefur verið kjörinn páfi, en þetta er í fyrsta sinn sem páfinn kemur frá Bandaríkjunum.

Prevost kemur frá Chicago og starfaði í mörg ár sem trúboði í Perú áður en hann varð erkibiskup þar í landi. Hann hefur valið sér nafnið Leó fjórtándi, eða Leó XIV. Hann þykir nokkuð ungur að árum miðað við forvera sína en hann er aðeins 69 ára gamall.

Prevost er talinn frjálslyndur miðjumaður. Hann hefur einkum beitt sér gegn fátækt og er talið að hann muni nálgast embætti sitt með svipuðum hætti og forveri hans, Frans  páfi.

Hann gerðist prestur eftir að hann hafði lokið bakkalárgráðu í stærðfræði árið 1977 og svo flutti hann til Perú á 9. áratug síðustu aldar og er hann í dag með tvöfaldan ríkisborgararétt, bandarískan og perúskan.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það heiður að Vatíkanið hafi nú kosið fyrsta bandaríska páfann. „En spennandi, þvílíkur heiður fyrir þjóð okkar. Ég hlakka til að hitta Leó XIV páfa. Það verður magnþrungin stund,“ skrifar forsetinn á Truth Social.

Að sögn BBC fannst kardinálunum í Páfagarði að nýr páfi þyrfti að vera maður sem gæti haldið áfram með góð verk forvera síns og einhver sem gæti verið brú á milli ólíkra skoðana og heima.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Trump ætlar að gefa öðrum flóa nýtt nafn

Trump ætlar að gefa öðrum flóa nýtt nafn
Pressan
Í gær

Örvæntingarfull leit að ungum systkinum – Horfin þegar mamma þeirra vaknaði

Örvæntingarfull leit að ungum systkinum – Horfin þegar mamma þeirra vaknaði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Musk hafði betur – Fær sinn eigin bæ

Musk hafði betur – Fær sinn eigin bæ
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafmyntamilljónamæringar og ættingjar þeirra numdir á brott hver á fætur öðrum

Rafmyntamilljónamæringar og ættingjar þeirra numdir á brott hver á fætur öðrum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Musk bölsótast út í fjölmiðla sem hann segir vilja sig feigan

Musk bölsótast út í fjölmiðla sem hann segir vilja sig feigan
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanlegt myndband af vélmenni vekur athygli – Hvað ætlaði það sér?

Óhugnanlegt myndband af vélmenni vekur athygli – Hvað ætlaði það sér?