fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Sakar Joe Biden um að byrja þriðju heimsstyrjöldina áður en pabbi hans tekur við sem forseti

Pressan
Mánudaginn 18. nóvember 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Jr., elsti sonur Donalds Trump verðandi Bandaríkjaforseta, sakar Joe Biden, núverandi forseta, um að byrja þriðju heimsstyrjöldina áður en faðir hans tekur við embætti í Hvíta húsinu í byrjun janúar næstkomandi.

Greint var frá því í gær að Joe Biden hefði heimilað Úkraínumönnum að nota langdrægar bandarískar eldflaugar á rússneskri grundu. Þetta hefur vakið athygli víða og telja margir að þetta muni leiða til hættulegrar stigmögnunar. Þá vekur þetta athygli í ljósi þess að aðeins rúmur er þar til Biden lætur af embætti Bandaríkjaforseta.

Donald Trump Jr. lét í sér heyra á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og sagði þetta: „Það virðist vera ljóst að hergagnaiðnaðurinn vilji fá þriðju heimsstyrjöldina áður en faðir minn fær tækifæri til að skapa frið og bjarga mannslífum.”

Fleiri deila áhyggjum Trumps yngri, þar á meðal David Sacks, milljarðamæringur sem studdi dyggilega við bakið á Trump í kosningabaráttu hans. Hann segir að ákvörðun Bidens um að nota bandarísk vopn á rússneskri grundu muni leiða til hressilegrar stigmögnunar. Spurði hann hvort markmið Bidens væri að láta Trump taka við í eins erfiðu ástandi og mögulegt er.

Búist er við því að Úkraínumenn muni beita hinum langdrægu bandarísku flaugum á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu