Jennifer var af víetnömsku bergi brotin og fluttu foreldrar hennar, Huei Hann Pan og Bich Ha Pan, til Kanada undir lok áttunda áratugarins sem flóttamenn. Jennifer fæddist árið 1986 og bróðir hennar, Felix, árið 1989.
Huei og Bich voru dugleg í vinnu og lögðu hart að sér til að koma undir sig fótunum í Kanada þar sem daglegt líf var talsvert frábrugðið því sem þau áttu að venjast í Víetnam.
Jennifer og Felix fengu það sem sumir myndu kalla strangt uppeldi. Þeim voru lagðar línurnar og alin upp þannig að þau myndu ná sem mestum árangri í lífinu. Jennifer mátti til að mynda ekki gera allt sem jafnaldrar hennar máttu gera. Hún fékk ekki að fara á böll í skólanum eða partý, 22 ára gömul hafði hún aldrei farið á skemmtistað, drukkið áfengi eða farið í frí með vinum. Þá þurfti hún að læra á píanó þó henni hundleiddist það og þurfti einnig að æfa listdans á skautum.
Jennifer sinnti þessu öllu og útskrifaðist að lokum frá háskólanum í Toronto og fékk virðulegt starf. Eða svo héldu foreldrar hennar að minnsta kosti. Síðar átti eftir að koma á daginn að allt var þetta haugalygi; Jennifer útskrifaðist ekki úr háskóla, hvað þá menntaskóla, og hafði hún falsað einkunnaspjöld sem sýndu glæstan námsárangur hennar. Hún átti meira að segja leynilegan kærasta í sjö ár, Daniel Wong, en foreldrar hennar voru mjög mótfallnir því að hún eignaðist kærasta svo ung.
Jennifer og Daniel lögðu á ráðin um að myrða foreldra hennar svo þau gætu verið saman í friði og til að geta fengið arf sem nam tugum milljóna króna. Árið 2010 réðu þau leigumorðingja til að myrða Huei Hann og Bich Ha Pan.
Að kvöldi 8. nóvember 2010 tók Jennifer útidyrahurðina úr lás áður en hún fór upp í herbergið sitt. Þar hringdi hún í mann sem hún hafði komist í samband við, David Mylvaganam, og lét hann vita að leiðin væri greið.
Ekki löngu síðar kom David að heimili Jennifer og foreldra hennar í félagi við tvo menn og gengu þeir inn um útidyrnar. Foreldrar Jennifer vissu vart hvaðan á sig stóð veðrið þegar grímuklæddir mennirnir kröfðust þess að fá peninga og önnur verðmæti.
Jennifer þóttist einnig vera mjög hissa en vissi allan tímann hvað var í gangi. Öllum þremur var svo skipað að fara niður í kjallara þar sem Bich og Huei voru bæði skotin mörgum sinnum en Jennifer ekki. Bich er talin hafa látist samstundis en þótt ótrúlegt megi virðast komst Huei lífs af frá árásinni.
Jennifer hringdi sjálf á lögreglu sem var fljót á vettvang og taldi hún í fyrstu að um ránsmorð hefði verið að ræða. Grunsemdir fóru þó að vakna þar sem ræningjarnir skildu ýmis verðmæti eftir og þá vakti það athygli lögreglu að Jennifer hafi ekki verið skotin og henni tekist að hringja á lögreglu, þó hún hafi verið bundin á höndum að eigin sögn.
Huei komst til meðvitundar nokkrum dögum eftir árásina og var hann lykilvitni í málinu gegn dóttur sinni. Rifjaði hann upp að hann hefði séð Jennifer hvísla einhverju að einum árásarmannanna, líkt og hann væri vinur hennar, áður en þau hjónin voru skotin. Jennifer var handtekin tveimur vikum eftir ódæðið og játaði loks að hafa ráðið leigumorðingja til að verða foreldrum sínum að bana.
Nokkrir mánuðir liðu þar til kærastinn, Daniel Wong, var handtekinn ásamt leigumorðingjunum sem komu að málinu. Jennifer, Daniel og leigumorðingjarnir Eric Shawn Carty, Lenford Roy Crawford og David Mylvaganan fengu lífstíðarfangelsisdóm. Eric lést í fangelsi árið 2018 en Jennifer afplánar dóm sinn í Grand Valley-kvennafangelsinu í Ontario.