fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Pressan
Þriðjudaginn 23. apríl 2024 07:00

Fiona Beal. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leynidagbók hinnar fimmtugu Fiona Beal, sem starfaði sem grunnskólakennari þar til hún var handtekin, kom upp um níðingsverk hennar. Í bókinni skýrði hún frá því að hún hefði stungið unnusta sinn, hinn 42 ára Nicholas Billingham, til bana „með köldu blóði“ og síðan grafið lík hans í garðinu þeirra. Þetta gerðist 2021.

Sky News segir að mál hennar sé nú fyrir rétti og hafi hún játað að hafa banað Billingham. Lík hans fannst í mars 2022, fjórum og hálfum mánuði eftir að síðast sást til hans.

Beal játaði á föstudaginn að hafa banað Billingham eftir að hún missti stjórn á sér en hún neitaði að hafa myrt hann.

Beal var handtekin í mars 2022 þegar lögreglan kom til hennar og fann fyrrgreinda dagbók og sá færslur hennar um morðið og að hún hefði grafið líkið.

Hún hafði einnig sent skilaboð úr síma Billingham til að villa um fyrir fólki. Í skilaboðunum sagði hún að Billingham og hún hefðu smitast af COVID og þyrftu að vera í einangrun.

Viku síðar sendi hún skilaboð til systur sinnar um að hún og Billingham hefðu slitið sambandi sínu því hún hefði komst að því að hann ætti í ástarsambandi við aðra konu.

Þetta var allt saman lygi að sögn saksóknara en hins vegar hafi Billingham haldið framhjá henni áður.

Hún sneri aftur til kennslu, hún kenndi 6 ára börnum, þegar hún hafði „jafnað sig af COVID“ og fékk mikinn stuðning frá fólki vegna „sambandsslitanna“.

En andlegri heilsu hennar fór hrakandi eftir þetta og í mars 2022 leigði hún sér sumarhús í Cumbria og sendi ættingjum sínum skilaboð þaðan. Þeir höfðu áhyggjur af henni og fengu lögregluna til að kanna með ástand hennar.

Lögreglan fann dagbókina í sumarhúsinu og þá fór boltinn að rúlla í morðmálinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?