BBC skýrir frá þessu og segir að „klámið“ hafi verið að nemendunum var sýnd höggmynd Michelangelo af Davíð sem er nakinn. Þetta er ein frægasta stytta vestrænnar lista- og menningarsögu en það fór greinilega mjög fyrir brjóstið á foreldrum eins nemandans sem sögðu að börnunum hefði verið sýnt klám. Foreldrar tveggja annarra barna sögðu að þeir hefðu viljað fá upplýsingar um fyrirhugaða sýningu á styttunni áður en hún fór fram.
Það voru 11 og 12 ára börn sem voru í kennslustundinni. Auk þess að fá að sjá myndir af Davíð fengu þau að sjá málverk eftir Michelangelo.
Carrasaquilla sagðist hafa sagt upp störfum eftir að skólastjórnin setti henni þá afarkosti að annað hvort myndi hún segja upp eða verða rekin.
Barney Bishop, formaður skólastjórnarinnar, sagði í samtali við Slate að á síðasta ári hefði skólastjórinn sent foreldrum tilkynningu um að börnum þeirra yrði sýnd styttan af Davíð en það hefði ekki verið gert að þessu sinni. Það hafi verið stór mistök því „foreldrar eigi alltaf rétt á að vita þegar verið er að kenna börnum þeirra umdeild efni og myndir“.