Það var að kvöldi til sem Jordan var á leið að bíl sínum þegar þrír menn réðust á hana. Þeir beindu skammbyssu að henni og neyddu hana til að afhenda þeim kreditkortið sitt og önnur verðmæti. Því næst neyddu þeir hana til að fara inn í bílinn.
Enginn mannanna kunni að aka beinskiptum bíl og því neyddu þeir Jordan til að setjast undir stýri. Þeir neyddu hana síðan til að aka á næstu bensínstöð.
Skammbyssu var beint að höfði hennar og allt virtist vonlaust þar til mennirnir sögðu henni að þeir ætluðu að nauðga henni. Þá rifjuðust orð móður hennar upp fyrir henni og hún spurði sjálfa sig: „Hvað myndi mamma gera?“
„Ég hugsaði um mömmu. Þegar hún var í háskóla var henni næstum nauðgað en hún náði að ýta manninum í burtu og flýja. Ég vildi vera sterk eins og manna og komast úr þessum aðstæðum,“ sagði hún í samtali við The State.
Orð móður hennar ómuðu í höfði hennar og skyndilega áttaði hún sig á að hún átt bara einn kost, hún varð að komast út úr bílnum.
Án þess að hika og án þess að mennina grunaði nokkuð stökk hún út úr bílnum á fullri ferð. Skömmu síðar stöðvaði ökumaður til að aðstoða hana.
„Þeir sátu í bíl á ferð, án ökumanns, og tvítug stúlka hafði nýlega blekkt þá upp úr skónum. Ég vildi óska að ég hefði getað sér svipinn á þeim þegar þeir áttuðu sig að ég hefði getað orðið fórnarlamb þeirra en varð það ekki,“ sagði hún.