fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Pressan

Norður-Kórea skaut eldflaug yfir Japan í nótt – Bandaríkin segjast reiðubúin til að verja Japan

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 4. október 2022 09:00

Frá hersýningu í Norður-Kóreu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk stjórnvöld telja eldflaugaskot Norður-Kóreu í nótt bæði „hættulegt og tillitslaust“ en eldflauginni var skotið yfir Japan og voru íbúar beðnir um að leita skjóls.

Adrienne Watson, talskona þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, ræddi málið í nótt og sagði að Bandaríkin standi við loforð sitt um verja Suður-Kóreu og Japan en útiloki ekki viðræður við einræðisstjórnina í Norður-Kóreu.

Eldflaugin, sem var skotið á loft í nótt, var sú fyrsta í fimm ár sem flaug yfir japanskt yfirráðasvæði. Watson sagði að eldflaugaskotið sýni að Norður-Kórea brjóti vísvitandi gegn ályktunum öryggisráðs SÞ og alþjóðlegum venjum í öryggismálum.

Hún sagði að Jake Sullivan, þjóðaröryggisráðgjafi, hafi rætt við starfsbræður sína í Japan og Suður-Kóreu eftir eldflaugaskotið og hafi þeir rætt „viðeigandi og hörð viðbrögð“ við því. Hann sagði starfsbræðrum sínum að Bandaríkin hviki ekki frá því loforði sínu að verja Japan og Suður-Kóreu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Endurfundir Harry og Karls helmingi lengri en þeir síðustu – Lét falleg orð falla um föður sinn

Endurfundir Harry og Karls helmingi lengri en þeir síðustu – Lét falleg orð falla um föður sinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Er þetta maðurinn sem skaut Charlie?

Er þetta maðurinn sem skaut Charlie?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Segja spennu ríkja milli Trump og RFK og að forsetinn sé milli steins og sleggju

Segja spennu ríkja milli Trump og RFK og að forsetinn sé milli steins og sleggju
Pressan
Fyrir 5 dögum

Á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi eftir að hún skráði hundinn sinn á kjörskrá

Á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi eftir að hún skráði hundinn sinn á kjörskrá