Í bókinni fjallar hún hvernig sé hægt að fremja morð án þess að upp komist. En það tókst henni nú ekki þegar hún myrti eiginmann sinn og nú hefur hún verið dæmd í ævilangt fangelsi og á fyrst möguleika á reynslulausn eftir 25 ár.
Sky News segir að fyrir dómi hafi saksóknari sagt að Nancy hafi skotið eiginmann sinn, Dan Brophy, til að fá líftryggingu hans greidda. Hann sagði að hjónin hafi glímt við fjárhagserfiðleika á þessum tíma og að Nancy hafi kynnt sér hvernig hún gæti orðið sér úti um óskráð skotvopn og síðan keypt Glock 17 skammbyssu á byssusýningu.
Verjandi Nancy hélt því fram að málflutningur saksóknarans byggðist eingöngu á getgátum vegna fjárhagserfiðleika hjónanna. Hann leiddi vitni fyrir dóm sem sögðu frá ástríku og sterku hjónabandi þeirra.
Nancy sagði að þau hjónin hefðu keypt sér líftryggingu sem hluta af áætlun þeirra um að fara á eftirlaun og hafi ætlað að greiða niður skuldir sína. Hún sagðist hafa kynnt sér hvernig væri hægt að verða sér úti um óskráð skotvopn vegna bókar sem hún hafi ætlað að skrifa.