fbpx
Þriðjudagur 02.desember 2025
Pressan

Donald Trump Jr. hæðir Alec Baldwin – Selur boli þar sem Baldwin er nuddað upp úr voðaskotinu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 26. október 2021 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Jr., sonur Donald Trump fyrrum Bandaríkjaforseta, er eins og faðir hans ekki hrifinn af fólki sem er ekki sömu skoðunar og þeir feðgar eða gerir grín að þeim. Þessu fær Alec Baldwin nú að kenna á.

Baldwin skaut nýlega konu til bana og særði leikstjóra þegar unnið var að upptökum á nýrri kvikmynd. Svo virðist sem um voðaskot hafi verið að ræða þar sem Baldwin vissi ekki að byssan væri hlaðin.

Baldwin hefur lengi verið einarður talsmaður þess að skotvopnalöggjöfin verði hert í Bandaríkjunum og hann hefur einnig brugðið sér í hlutverk Donald Trump eldri í grínþáttunum Saturday Night Live. Hann hefur þótt fara á kostum í hlutverki Trump en það fellur Trumpfeðgunum eflaust ekki vel í geð því þeir virðast ekki þola að grín sé gert að þeim eða þeir gagnrýndir.

Nú býður Donald Trump Jr. stuttermaboli til sölu á heimasíðu sinni. Þeir eru með áletruninni: „GUN‘S DON‘T KILL PEOPLE ALEC BALDWIN KILLS PEOPLE“. Kosta bolirnir 27,99 dollara. The Hill skýrir frá þessu.

Baldwin hefur lengi verið talsmaður hertrar vopnalöggjafar í Bandaríkjunum en það fellur Trumpfeðgunum ekki í geð því þeir sækja mikinn stuðning til skotvopnaeigenda.

All frá því að Baldwin varð konunni að bana hefur Trump Jr. verið iðinn við að hæða hann á Instagram. Í síðustu viku skrifaði hann til dæmis: „Svona lítur það út þegar bjáni, sem er andstæðingur skotvopna, drepur fleiri með einu vopni en allt stóra vopnasafnið þitt hefur drepið.“

Hann hefur einnig svarað þeim fullum hálsi sem hafa gagnrýnt árásir hans á Baldwin og sagt allt þetta heilaga fólk þarna úti geti farið til fjandans. Ef einhver annar hefði orðið konunni að bana hefði Alec Baldwin bókstaflega talað verið sá fyrsti til að míga á gröfina og reyna að draga ályktanir. „Til fjandans með hann,“ skrifaði Trump Jr.

Svona líta bolirnir út. Skjáskot/shopdonjr.com
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Magnað góðverk mannsins sem vann einn stærsta lottóvinning í sögu Bretlands

Magnað góðverk mannsins sem vann einn stærsta lottóvinning í sögu Bretlands
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bróðurdóttir Trumps segir tvennt útskýra framkomu frænda hennar í garð fjölmiðlakvenna

Bróðurdóttir Trumps segir tvennt útskýra framkomu frænda hennar í garð fjölmiðlakvenna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stórfurðulegt mál vekur reiði í Frakklandi – Mannauðsstjóri ráðuneytis laumaði þvagræsandi lyfjum í kaffi kvenna sem komu í atvinnuviðtal

Stórfurðulegt mál vekur reiði í Frakklandi – Mannauðsstjóri ráðuneytis laumaði þvagræsandi lyfjum í kaffi kvenna sem komu í atvinnuviðtal
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hann hélt áfram að brjóta á stelpum eftir að mál hennar var fellt niður

Hann hélt áfram að brjóta á stelpum eftir að mál hennar var fellt niður
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þrír bræður fóru í veiðiferð en aðeins einn kom heim – Skelfileg sjón blasti við lögreglu

Þrír bræður fóru í veiðiferð en aðeins einn kom heim – Skelfileg sjón blasti við lögreglu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Reiði á Ítalíu eftir óhugnanlegt nauðgunarmál – Ráðherra vill láta gelda mennina

Reiði á Ítalíu eftir óhugnanlegt nauðgunarmál – Ráðherra vill láta gelda mennina
Pressan
Fyrir 6 dögum

Vara eindregið við fjölkærum samböndum

Vara eindregið við fjölkærum samböndum
Pressan
Fyrir 6 dögum

Gift kona sökuð um kynferðislega áreitni í gufubaði á Mallorca

Gift kona sökuð um kynferðislega áreitni í gufubaði á Mallorca