fbpx
Mánudagur 02.febrúar 2026
Pressan

Skotinn til bana á pitsastað í Stokkhólmi

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 21. júní 2021 06:15

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

25 ára karlmaður var skotinn til bana á pitsastað í Sätra í Stokkhólmi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Fertugur karlmaður særðist í árásinni og liggur á sjúkrahúsi. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.

Lögreglunni var tilkynnt um skothríð á útisvæði pitsastaðar í Sätra skömmu fyrir klukkan 19 í gærkvöldi. Á vettvangi kom lögreglan að tveimur mönnum með skotsár. Auk hinna særðu var fjöldi annarra gesta á veitingastaðnum.

Í gærkvöldi tilkynnti lögreglan að 25 ára karlmaður hefði látist af völdum skotsára sem hann hlaut í árásinni. Ekki hefur verið skýrt frá hversu alvarlega hinn maðurinn er særður.

Vitni segja að tveir menn hafi flúið af vettvangi eftir árásina. Ekki er vitað hvort þeir hleyptu báðir af skotum en þeir eru báðir grunaðir um aðild að árásinni. Annar flúði á rafskútu en hinn hljóp á brott að sögn talsmanns lögreglunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandarísk móðir gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að leyfa 14 ára syni sínum að fá húðflúr

Bandarísk móðir gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að leyfa 14 ára syni sínum að fá húðflúr
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fimm ára fangelsi fyrir athugasemd á samfélagsmiðli

Fimm ára fangelsi fyrir athugasemd á samfélagsmiðli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eiginkona eins helsta ráðgjafa Trumps höfð að háði og spotti – Kallaði frjálslynt lýðræði vók

Eiginkona eins helsta ráðgjafa Trumps höfð að háði og spotti – Kallaði frjálslynt lýðræði vók
Pressan
Fyrir 4 dögum

Olli fjaðrafoki með því að deila upptöku þar sem heyra má ekkju Charlie Kirk flissa skömmu eftir morðið

Olli fjaðrafoki með því að deila upptöku þar sem heyra má ekkju Charlie Kirk flissa skömmu eftir morðið