fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Pressan

Trump segist yfirgefa Hvíta húsið ef kjörmennirnir kjósa Biden

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 27. nóvember 2020 05:26

Donald Trump, Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, ræddi í gær við fréttamenn og svaraði spurningum þeirra. Þetta var í fyrsta sinn frá forsetakosningunum í byrjun mánaðarins sem hann ræddi við fréttamenn. Hann var spurður hvort hann muni yfirgefa Hvíta húsið ef kjörmennirnir staðfesta sigur Joe Biden. „Það mun ég örugglega gera. Það veistu vel,“ sagði Trump við fréttamanninn.

Þetta er líklegast það næsta því sem Trump hefur komist að viðurkenna ósigur sinn í kosningunum en hann sló ákveðinn varnagla og bætti við að hugsanlega muni hann aldrei viðurkenna ósigur og að það verði mistök ef kjörmennirnir staðfesta kjör Biden. „Ef þeir gera það, þá gera þeir mistök. Það væri mjög erfitt að viðurkenna ósigur,“ sagði hann.

Joe Biden verður settur í embætti þann 20. janúar. Venjan er að fráfarandi forseti sé viðstaddur embættistökuna en ekki er víst að Trump verði viðstaddur.

Trump hefur margítrekað haldið því fram að víðtækt kosningasvindl hafi átt sér stað án þess að leggja fram neinar sannanir þar um. Hann hefur reynt að fá dómstóla til að ógilda niðurstöður kosninganna í mörgum ríkjum þar sem Biden sigraði en án árangurs.

Kjörmenn ríkjanna koma saman þann 14. desember til að kjósa næsta forseta. Þeir eru 538 og þarf frambjóðandi að tryggja sér stuðning 270 þeirra til að verða kjörinn forseti. Biden fékk 306 kjörmenn í kosningunum og Trump 232.

Kjörmennirnir eru fulltrúar frambjóðendanna sem þeir hafa í raun stillt upp í framboð í hverju ríki. Þegar kjósendur greiða frambjóðanda atkvæði eru þeir tæknilega séð að greiða atkvæði um hvaða kjörmenn munu mæta til fundarins þar sem forsetinn er formlega kjörinn. Stjórnarskráin kveður ekki á um að kjörmennirnir eigi að greiða þeim frambjóðanda atkvæði sem fékk flest atkvæði í ríkinu þeirra. Í nokkrum ríkjum hafa verið sett lög um þetta en i sögulegu samhengi eru til dæmi um kjörmenn sem hafa kosið gegn frambjóðandanum sem stillti þeim upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dæmdir til opinberrar hýðingar eftir að þeir voru staðnir að kossaflensi

Dæmdir til opinberrar hýðingar eftir að þeir voru staðnir að kossaflensi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reykjavík sú áttunda öruggasta í Evrópu

Reykjavík sú áttunda öruggasta í Evrópu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún varð ekkja fyrir áratug – Nú gengur hún með barn heitins eiginmanns síns

Hún varð ekkja fyrir áratug – Nú gengur hún með barn heitins eiginmanns síns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan beið í þrjá áratugi – Í síðustu viku gerðist það loksins

Lögreglan beið í þrjá áratugi – Í síðustu viku gerðist það loksins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór ölvuð á rafskútu og það endaði skelfilega – Gæti fengið 20 ára fangelsi

Fór ölvuð á rafskútu og það endaði skelfilega – Gæti fengið 20 ára fangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breskur göngumaður fær himinháan reikning eftir að honum var bjargað með þyrlu

Breskur göngumaður fær himinháan reikning eftir að honum var bjargað með þyrlu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ótrúlegur svikahrappur – Þær vissu ekkert

Ótrúlegur svikahrappur – Þær vissu ekkert
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nýjasta uppátæki Trumps vekur athygli – Gerði þessar breytingar á veggjum Hvíta hússins

Nýjasta uppátæki Trumps vekur athygli – Gerði þessar breytingar á veggjum Hvíta hússins