fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
Pressan

Fara gegn Trump – „Kosningarnar 3. nóvember voru þær öruggustu í sögu Bandaríkjanna“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 13. nóvember 2020 06:45

Færði Biden Trump gjöf með þessu?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Kosningar 3. nóvember voru þær öruggustu í sögu Bandaríkjanna,“ þetta segir í niðurstöðu alríks- og ríkiskjörstjórna um framkvæmd kosninganna en yfirlýsing þeirra var birt í gærkvöldi að bandarískum tíma. Um er að ræða opinberar stofnanir og nefndir sem annast framkvæmd kosninga í landinu. Þær fara því gegn orðum Donald Trump, forseta, sem hefur ítrekað haldið því fram að víðtækt kosningasvindl hafi átt sér stað í kosningunum en hefur ekki lagt fram neinar sannanir fyrir því.

„Kosningarnar 3. nóvember voru þær öruggustu í sögu Bandaríkjanna. Núna eru kjörstjórnir um allt land að fara yfir og leggja mat á framkvæmdina áður en þær birta niðurstöðurnar,“ segir í yfirlýsingu Election Infrastructure Government Coordinating Council og Election Infrastructure Sector Coordinating Council. Þessi ráð bera ábyrgð á eftirliti og framkvæmd með kosningum.

„Það eru engar sannanir fyrir að gögnum hafi verið eytt eða að kjörseðlar hafi glatast, né að atkvæðum hafi verið breytt eða á nokkurn hátt átt við þau,“ segir einnig í yfirlýsingunni.

Trump hefur ekki enn viljað horfast í augu við ósigur sinn í kosningunum og lýsti sig raunar sigurvegara á kosninganótt. Hann hefur ítrekað sagt að rangt hafi verið haft við í kosningunum án þess að leggja fram nokkrar sannanir fyrir því. Það er því spurning hvort hann muni bregðast við yfirlýsingu kjörstjórnanna eða halda sínu striki.

„Í öllum ríkjum, þar sem litlu munar á frambjóðendunum, eru til gögn um hvert einasta atkvæði. Því er hægt að telja hvert einasta atkvæði aftur ef nauðsyn krefur,“ segir í yfirlýsingu embættismannanna.

„Við vitum að margar órökstuddar ásakanir hafa komið fram og margir möguleikar eru fyrir staðlausar upplýsingar um kosningarnar en við getum fullvissað ykkur um að við höfum fulla trú á öryggi og friðhelgi kosninganna okkar. Það ættuð þið einnig að hafa,“ segir einnig í yfirlýsingunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tvær af heitustu MAGA-liðunum deila harkalega – „Þú segist vera kristin en eyðileggur hjónabandið þitt eins og hóra“

Tvær af heitustu MAGA-liðunum deila harkalega – „Þú segist vera kristin en eyðileggur hjónabandið þitt eins og hóra“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eldheitur Repúblikani dæmdur í 80 ára fangelsi – Réði leigumorðingja til að skjóta á Demókrata

Eldheitur Repúblikani dæmdur í 80 ára fangelsi – Réði leigumorðingja til að skjóta á Demókrata
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ólétt kona myrt og höfuð maka hennar „skorið af og sett á staur“

Ólétt kona myrt og höfuð maka hennar „skorið af og sett á staur“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leitaði ráða hjá ChatGPT og fékk sjaldgæfan sjúkdóm í kjölfarið

Leitaði ráða hjá ChatGPT og fékk sjaldgæfan sjúkdóm í kjölfarið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Suðurkóreski herinn stendur frammi fyrir nýjum vanda vegna lágrar fæðingartíðni

Suðurkóreski herinn stendur frammi fyrir nýjum vanda vegna lágrar fæðingartíðni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi