fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Pressan

Fyrrum þingmaður Bandaríkjaþings virðist hafa fengið heilablóðfall í beinni útsendingu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 25. september 2020 18:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski stjórnmálamaðurinn Ronald Ernest Paul virðist hafa fengið heilablóðfall í beinni útsendingu í dag. Ronald, betur þekktur sem Ron Paul, sat í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Texas-fylki á árinum 1997-2013 og sóttist eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum 2008. Ron er nú kominn á eftirlaun en er málsmetandi maður um stjórnmál.

Ron Paul veitti viðtal í dag á YouTube rás sinni í beinni útsendingu. Hann var að tala um efnahaginn í Bandaríkjunum þegar hann varð skyndilega þvoglumæltur og átti erfitt með að halda áfram. Slökkt var á útsendingunni og samkvæmt Fox-fréttastöðinni var þingmaðurinn fyrrverandi fluttur í flýti á sjúkrahús. Samkvæmt FOX er Ron þó við meðvitund og bjartsýnn fyrir framhaldinu. Hann er 85 ára að aldri.

https://www.youtube.com/watch?v=dFsaIMw8uF8&ab_channel=WTN

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós
Pressan
Fyrir 5 dögum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 5 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta