Bandaríkjamaðurinn Kevin Howard varð fyrir miklu áfalli þegar eiginkona hans til tólf ára fór frá honum til að vera með öðrum manni. Kevin fór í mál við manninn og nú hefur dómstóll í Norður-Karólínu kveðið upp úrskurð sinn. Kevin fær 750 þúsund dali í bætur, rúmar 90 milljónir króna.
Í sumum ríkjum Bandaríkjanna, Norður Karólínu þar á meðal, eru í gildi lög sem kölluð eru „alienation of affections“ en þau gera fólki kleift að höfða mál, til dæmis í tilfellum þar sem framhjáhald er annars vegar.
Howard segir í samtali við CNN að málið snúist um svo miklu meira en peninga. „Ég trúi því að hjónabandið sé heilagt,“ segir hann og bætir við að skilnaðurinn hafi haft mikil áhrif á hann. Maðurinn sem eiginkona hans tók saman við var vinnufélagi hennar og kveðst Howard hafa litið á hann sem vin sinn.
Howard segir að eiginkona hans hafi í fyrstu viljað skilnað því hann væri sjaldan heima vegna vinnu sinnar. Hann grunaði þó að eitthvað meira lægi að baki og réði einkaspæjara sem fylgdist með eiginkonu hans. Það var þá sem framhjáhaldið kom upp á yfirborðið.
Cindy Mills, lögmaður Howards, segir að maðurinn sem kom upp á milli þeirra hjóna hafi hlegið þegar hann frétti af stefnunni. „Núna stendur hann frammi fyrir því að þurfa að greiða 750 þúsund dali. Ég held að hann sé ekki hlæjandi núna.“
Fjölmörg ríki hafa afnumið þessi lög, alienation of affection, því að sumra mati eru þau úrelt. Þau eru þó enn í gildi á Hawai og í ríkjum á borð við Mississippi, Nýju-Mexíkó, Suður-Dakóta og Utah auk Norður-Karólínu.