Lögreglunni barst tilkynning klukkan 17.54 að staðartíma um að einn hefði verið beittur miklu ofbeldi og fleiri væru á vettvangi. Þetta var í íbúð í Prinsens götu. Lögreglumenn fóru inn í íbúðina klukkan 18.09 og fundu tvo alvarlega slasaða einstaklinga. Þeir voru fluttir á sjúkrahús en ekki tókst að bjarga lífi þeirra.
Klukkan 18.38 var meintur árásarmaður handtekinn í miðbænum eftir að lögreglumenn höfðu skotið hann í fótlegg.
Lögreglan segir að árásarmaðurinn hafi ekki notað skotvopn við ofbeldisverkin en hafi verið með verkfæri. Lögreglan hefur ekki viljað skýra frá hvernig verkfæri var um að ræða.
Norska ríkisútvarpið segir að óljóst sé um alvarleika meiðsla hins meinta geranda.
Uppfært klukkan 19.20
Norska ríkisútvarpið segir að það hafi verið unglingar sem létust.