Yfirvöld segja að níu ára stúlka hafi látist í skjálftanum og tveir karlmenn á áttræðisaldri. Hann reið yfir um klukkan 8 að staðartíma og mældist 6,1 stig. Margir húsveggir hrundu í skjálftanum og eldar kviknuðu. Að minnsta kosti 41 slasaðist.
Yfirvöld segja að engin hætta sé á flóðbylgju í kjölfar skjálftans.
Uppfært klukkan 06.25
Erlendir fjölmiðlar segja að nú hafi verið staðfest að rúmlega 200 manns hafi slasast í skjálftanum.