fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Pressan

Ný lög í Svíþjóð – Afla þarf samþykkis fyrir kynlífi – Nú verður hægt að dæma fyrir nauðgun þótt ofbeldi og hótunum sé ekki beitt

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 24. maí 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sænska þingið samþykkti ný lög í gær sem kveða á um að óheimilt er að stunda kynlíf með manneskju sem hefur ekki sagt skýrt já áður en að kynlífi kemur eða hefur með aðgerðum sínum gefið til kynna að hún vilji stunda kynlíf.

Þetta hefur í för með sér að framvegis verður hægt að sakfella fólk fyrir nauðgun þótt það beiti ekki ofbeldi eða hótunum til að koma fram vilja sínum. Þetta á einnig við þegar fórnarlambið getur ekki veitt mótspyrnu sökum aðstæðna.

Lögin hafa verið gagnrýnd af lagaráðinu, sem dómarar sitja í, en ráðið skoðar sum lagafrumvörp ofan í kjölin áður en þau eru lögð fyrir þingið. Ráðið segir að lögin séu ekki nægilega skýr.

Ríkisstjórnin brást við þessu með því að láta útskýringar fylgja með frumvarpinu en í þeim kemur fram hvernig dómstólar eiga að taka á sumum málum.

Til dæmis kemur fram að þegar mat er lagt á hvort fólk tók þátt í kynlífi af fúsum og frjálsum vilja skuli leggja mat á hvort viðkomandi tjáði sig með orðum, aðgerðum eða á annan hátt.

Frumvarpið varð til í kjölfar MeToo hreyfingarinnar á síðasta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós
Pressan
Fyrir 5 dögum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 6 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta