,,Já, þetta var opnað á laugardaginn var og voru Salmon Tails með hæsta tilboðið, kringum 60 milljónir á ári,“ sagði Ólafur Sigvaldsson á Brúarhrauni og formaður veiðifélags Hítará.
Eins og áður sagði voru voru tilboðin sem bárust í ána opnuð í sl. laugardag í veiðihúsinu við Hítarána.
,,Þetta eru Arnar Jón og félagar, sem eru með Deildará og þar á undan Laxá á Ásum, sem eru með hæsta boðið. Síðan kom Stangaveiðifélag Reykjavíkur en við erum að fara að skoða þetta betur og meta stöðuna með framhaldið. Salmon Tails er allavega með hæðsta tilboðið,, sagðiÓlafur ennfremur.