fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Matur

Heit súkkulaðibaka með karamellukremi, karamellukurli og vanilluís

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 10. september 2023 13:00

Mynd; Heimkaup

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þig vantar eitthvað fljótlegt til þess að bera fram í saumó, eftirrétt í matarboðið eða eitthvað ljúffengt í afmælisveisluna þá er þessi baka alveg fullkomin. Hún er algjör draumur fyrir sanna unnendur súkkulaðis enda algjörlega nóg af því hér.

Hráefni

Kaka

  • 120 g Púðursykur
  • 220 g Sykur
  • 180 g Mjúkt smjör
  • 1 msk Vanilludropar
  • 2 egg við stofuhita
  • 60 ml Mjólk
  • 4 msk Kakó
  • 1 tsk Matarsódi
  • 320 g Hveiti
  • 0.5 tsk Mulið salt
  • 150 g Suðusúkkulaði, saxað
  • 150 g Suðusúkkulaði 70%, saxað

Ofan á kökuna:

  • 100 g Síríus Pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu
  • 3 msk Rjómi

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 180°C blástur
  2. Saxið súkkulaðið og setjið til hliðar og útbúið kaffið og látið kólna.
  3. Setjið púðursykur, sykur, smjör og vanilludropa í skál og þeytið saman. Setjið eitt egg út í í einu og þeytið vel á milli. Þeytið blönduna þar til hún er orðin ljós og létt
  4. Blandið kakói og köldu kaffi saman við og þeytið.
  5. Setjið hveiti, matarsóda og salt saman við og blandið saman með sleikju. Setjð saxað súkkulaði saman við að síðustu.
  6. Smyrjið ofnfast mót í meðalstærð og smyrjið deiginu í formið. Bakið í 30 mín.
  7. Útbúið karamellukremið með því að brjóta súkkulaðið og setja í lítinn pott ásamt rjómanum. Bræðið saman og takið af hellunni
  8. Takið kökuna út, látið mesta hitann rjúka úr henni, „drizzlið“ kreminu yfir kökuna og toppið með karamellukurli. Berið fram með vanilluís eða rjóma.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
02.08.2025

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð
Matur
19.07.2025

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi
Matur
16.07.2025

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi
Matur
18.04.2025

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa
Matur
17.04.2025

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum
Matur
05.02.2025

„Það vantar meiri kærleik!“

„Það vantar meiri kærleik!“
Matur
23.01.2025

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn