fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Matur

Doddi litli leitar að versta „sparimatnum“ – Netverjar skiptast í fylkingar – „Kjöt sem bragðast eins og blautur lopi“

DV Matur
Laugardaginn 8. október 2022 14:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Helgi Þórðarson, útvarpsmaður, ákvað að spyrja á Twitter hvað netverjar telja vera versta „sparimatinn“ en tilefni spurningarinnar var það að Dodda var boðið upp á lambaskanka, sem eru að hans mati versti sparimaturinn.

„Hver er að ykkar mati versti „sparimaturinn? Þá er ég ekki að tala um íslenskan ónýtan „mat“ eins og Þorra og svoleiðis. Ég gæti sagt mest allt lambakjöt en lambaskankar toppa viðbjóðinn þar, gæti virkað í hádegi á mánudegi en spari? Fokk nei! Já það voru lambaskankar í dag.“

Þó nokkur svör hafa borist við fyrirspurn Dodda og leggja netverjar til hrygg, hangikjöt, kalkún, hamborgarhrygg, allt lambakjöt, brúnaðar kartöflur og allt bleikt svínakjöt, svo dæmi séu tekin.

„Verst þegar fólk býður upp á svona rjóma-ávaxta-nammi-marengs-kókosbolluklessu í desert,“ skrifar ein og ræðst þar að föstum lið í fjölskylduboðum margra.

„Kalkúnn. Bragðast eins og pínu of gamall kjúklingur og fyllingin er eins og drulla. Myndi ekki borða í hádeginu á mánudegi,“ skrifar önnur sem segir það sem margir hafa hugsað í gegnum tíðina um kalkún.

Enn ein ræðast að hrísgrjóna eftirréttinum vinsæla: „Risalamande. Kaldur grjónagrautur með sultu. Ofboðslega þungt í magann og maður finnur bjúginn safnast undir húðinni,“ svo gengur hún lengra og ræðst á sjálfan brauðréttinn. „Brauðréttur. Afgangaréttur sem einhvern veginn slysaðist til að verða veislumatur.“

Doddi bætir við í athugasemd að rif séu ofmetið „drasl“ og hundleiðinlegt að borða.

Wellington. Hvaða óþarfa hæp er það? Viðbjóður,“ skrifar enn ein.

Umræðan fer í óvænta átt

Jón Gnarr villtist svo inn í umræðuna og lagði til gellur. Doddi benti á að það gæti seint talist veislumatur. „Þú mætir ekki í sunnudags steikina til mömmu og færð gellur er það“

Jón benti Dodda þá á að hann á enga mömmu.

Sættist náðust þó með þeim Dodda og Jóni. Sérstaklega eftir að Jón rifjaði upp að hafa fengið soðinn mjólkurkóp. „sem ku vera kópur sem er enn á spena (en auðvitað ekki eftir að búið er að sjóða hann“. Bauð Jón svo Dodda að kíkja í mat til hans. „Ég skal sjóða kóp og baka fyrir þig júgurglás með nýjum rófum og púðursykri“

Én af umræðunni við þennan þráð sem Doddi litli birti á Twitter má ráða að flestur veislumatur hér á landi eigi sér einhverja andstæðinga. Jafnvel villibráð var nefnd á nafn og sjálf íslenska kjötsúpan. Eftirréttirnir creme bruleé og tíramísú voru líka nefndir á nafn sem og rækjukokkteilar.

Einn skrifar líka sár: „Ég held að það sé búið að nefna allan uppáhaldsmatinn minn á þessum þræði og flesta uppáhalds eftirréttina og meðlætið.“

Af smá yfirferð yfir öll svörin má ráða að svínakjöt sé minnst vinsælast, bæði reykt og óreykt og ofeldað lambakjöt eigi sér fáa aðdáendur – sérstaklega þá skankarnir, já og svo kalkúnninn auðvitað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa