fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Lang bragðbesta og fallegasta jólabrauðtertan úr smiðju Sólrúnar

Sjöfn Þórðardóttir
Mánudaginn 20. desember 2021 13:00

Jólabrauðtertan hennar Sólrúnar sló í gegn í fyrra og þótti sú lang bragðbesta og fallegasta enda fagurlega skreytt og gerð af brauðtertumeistarnum sjálfum./Ljósmynd Stefán Fréttablaðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brauðtertur eru alltaf mjög vinsælar og hafa verið að koma mjög sterkt inn síðastliðin ár eftir að vera í smá lægð um árabil. Sólrún Sigurðardóttir matgæðingur með meiru sem hlaut fyrstu verðlaun fyrir bragðbestu brauðtertuna í brauðtertukeppni menningarnætur Reykjavíkur árið 2019 er sérstaklega lagin við að koma með brauðtertur sem passa vel við hverja árstíð. Fyrir jólin í fyrra framreiddi Sólrún þessa glæsilegu jólabrauðtertu sem sló í gegn. Hún er fagurlega skreytt og guðdómlega ljúffeng þar sem keimur af jólunum kemur við sögu. Það verður enginn svikinn af þessari.

Nóg af hvítlauk í þessari

„Brauðterta mín er pínu frábrugðin að þessu sinni. Ég er kannski pínu tækifærissinni að því leyti að ef ég finn uppskrift sem mér finnst spennandi og öðruvísi er ég ávallt tilbúin að prufa. Þessi hefur notið mikilla vinsælda í minni fjölskyldu, hvítlauks unnendur ættu að kætast því nóg er af hvítlauknum hér.“

Sólrún Sigurðardóttir matgæðingur með meiru og snillingur í brauðtertugerð.

 

 

Brauðtertur vinsælar á veisluborðum

Í fjölskyldu Sólrúnar eru brauðtertur ávallt vinsælar og hafa verið í miklu uppáhaldi á veisluborðum fjölskyldunnar. „Það hefur alltaf komið í minn hlut að gera þær fyrir veislur enda hef ég mjög gaman að dunda mér við þær,“ segir Sólrún og finnst fátt skemmtilegra en að töfra fram fallegar brauðtertur og skreyta þær með viðeigandi hætti að hverju sinni.

Jólabrauðtertan

1 stk. rúllutertubrauð eða hringlaga brauðtertubrauð

200 g rækjur (afþýða)

3 egg, harðsoðin og skorin í smáa bita (í eggjaskerar)

½ dós sýrður rjómi 18%.

1 dl hvítlaukssósa að eigin vali

1 msk. piparrótarsósa ( horseradish sauce ) eða hvaða tegund sem vill

2 msk. ferskt dill, saxað

2 – 4 söxuð hvítlauksrif

3 – 4 stykki passíuávextir/ástaraldin (passion fruit)

Fyrir skreytingu, greni, rifsber, salat og ferskar kryddjurtir að eigin val.

Blandið saman rækjum, eggjum, sýrðum rjóma, hvítlauks- og piparrótarsósu, dilli og söxuðum hvítlauk í skál og hrærið saman.

Skafið fræinn innan úr ástaraldin ávöxtunum og hrærið saman við salatið, smyrjið salatinu á brauðið, lag fyrir lag og skreytið efsta lagið til dæmis með rækjum og fræjum úr passíuávöxtunum. Hægt er að skreyta að vild, með ferskum kryddjurtum salati, greni og jafnvel með rifsberjum en þau eru mjög jólaleg eins og hér er gert. Berið fram á fallegan og jólalegan hátt.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa