fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Matur

Máltíð í krukku – Einfaldar, gómsætar og hollar uppskriftir

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 20. mars 2021 18:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað er betra en að byrja daginn á því að opna ísskápinn og þar bíður þín tilbúinn morgun- eða hádegismatur?

Hér eru nokkrar uppskriftir að einföldum, hollum og gómsætum mat í krukku sem þú getur undirbúið kvöldið áður.

Chiagrautur

KLASSÍSKUR

  • 2 msk. chiafræ
  • ½ bolli mjólk að eigin vali
  • 1 tsk. hlynsíróp (valkvætt)
  • ½ tsk. vanilludropar (valkvætt)

Allt sett í krukku, blandað saman og geymt í ísskáp yfir nótt.

SÚKKULAÐI

  • 2 msk. chiafræ
  • ½ bolli mjólk að eigin vali
  • 1 tsk. hlynsíróp (valkvætt)
  • ½ tsk. vanilludropar (valkvætt)
  • 1 msk. kakóduft

Allt sett í krukku, blandað saman og geymt í ísskáp yfir nótt.

Getur toppað með frosnum hindberjum áður en þú lokar krukkunni.

Annað: Sniðugt er að nota frosna berjablöndu. Ódýrara og þægilegra. Það er líka gott að setja mangó og kókosflögur ofan á grautinn. Endist allt að fimm daga í ísskáp og nokkrar vikur í frysti. Sniðugt að nota ílát sem eru ekki of stór svo það komist minna loft.

Mynd/Minimalist Baker/YouTube

Hafragrautur

KALDUR HAFRAGRAUTUR Í KRUKKU

Grunnurinn

  • Sama magn af höfrum og plöntumjólk. Til dæmis einn bolli hafrar og einn bolli mjólk.
  • Hlynsíróp (valkvætt)
  • Kanill (valkvætt)

Blandað saman og sett í ísskáp yfir nótt.

Hugmyndir að hráefni til að setja ofan á grautinn: Epli, banani, jarðarber, bláber, hnetusmjör, möndlusmjör, hampfræ, dökkt súkkulaði, valhnetur, kókosflögur og jógúrt.

GULRÓTARGRAUTUR SEM ER EINS OG KAKA

  • 2 dl hafrar
  • 2 dl plöntumjólk
  • 1 dl rifnar gulrætur
  • Hlynsíróp eftir smekk
  • Kanill eftir smekk
  • Pekanhnetur
  • 1 msk. möndlusmjör (eða meira)

Blandaðu öllu saman í krukku og geyma í ísskáp yfir nótt. Líka gott að strá pekanhnetunum yfir grautinn

HNETUSMJÖRSGRAUTUR

  • ½ bolli ósæt möndlumjólk (eða önnur plöntumjólk)
  • ¾ msk. chiafræ
  • 2 msk. hnetusmjör m. salti
  • 1 msk. hlynsíróp
  • ½ bolli tröllahafrar

Ofan á (valkvætt): Banani, jarðarber eða hindber.

Settu öll hráefni nema hafra í krukku og hrærðu saman. Bættu höfrunum við og hrærðu aftur saman.

Geymdu í ísskáp yfir nótt, eða í allavega sex klukkutíma.

Daginn eftir geturðu borðað beint úr krukkunni eða bætt við ferskum ávöxtum ofan á.

Uppskrift: YouTube/Minimalist Baker

Mynd/Skjáskot/HurryTheFoodUp

Salat í krukku

Það er auðvitað hægt að hafa dressinguna í sérkrukku, en ef þú ætlar að hafa allt innihaldið í einni krukku þá er ákveðin formúla frá HurryTheFoodUp sem auðvelt er að fylgja til að tryggja að salatið haldist ferskt og brakandi.

Formúlan

Það er gott að miða við að hafa um 700 ml krukku fyrir eitt salat.

Fyrsta lag: Dressing.

Annað lag: Grænmeti eins og tómatar, gúrka, rauðlaukur, aspas, sellerí, gulrætur, paprika.

Þriðja lag: Eldað grænmeti eins og sveppir, brokkolí eða kúrbítur. Hér er líka gott að setja baunir, eins og kjúklingabaunir eða linsubaunir, og gular eða grænar baunir.

Fjórða lag: Soðin egg og ostur, eins og fetaostur.

Fimmta lag: Hrísgrjón, pasta, kínóa eða kúskús.

Sjötta lag: Hnetur og eitthvað grænt, eins og kál, spínat eða klettasalat.

Það þarf ekki að fylgja öllum sex skrefunum, þú getur til að mynda sleppt fjórða laginu ef þú ert vegan. Þú getur líka sett vegan fetaost í staðinn

Aðferð

  1. Byrjaðu á því að hafa öll hráefni tilbúin. Vertu búin/n að skera niður og skola allt sem þarf að skera og skola, elda það sem þarf að elda.
  2. Útbúðu dressinguna.
  3. Þegar allt er klárt raðarðu í krukkuna og fylgir formúlunni hér að framan. Settu síðan lokið ofan á og krukkuna inn í ísskáp. Einfaldara verður það ekki.
  4. Annað: Þú getur leikið þér endalaust með formúluna. Fyrir meira prótein geturðu bætt við Oumph! eða öðru sojapróteini eða kjúklingi.
  5. Góð þumalputtaregla er að setja blautu hráefnin neðst og þurru efst.
  6. Það fer eftir því hvað er í salatinu hversu lengi það endist í ísskápnum. Venjulega um fjóra til fimm daga
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
18.01.2025

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann
Matur
14.01.2025

Piparkökudeigsís er nýjung frá Skúbb

Piparkökudeigsís er nýjung frá Skúbb
Matur
06.10.2024

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“
Matur
17.09.2024

Skál komin á framtíðarheimili í hjarta miðborgarinnar

Skál komin á framtíðarheimili í hjarta miðborgarinnar