Mikil eftirvænting er meðal miðbæjarunnenda eftir að Duck & Rose opni við Austurvöll þar sem Café París var áður til húsa. Um er að ræða eitt vinsælasta útisvæði landsins en stefnt er á opna í vikulok. Starfsfólk staðarins hamast nú við að leggja lokahönd á herlegheitin en guðdómlegur mosaveggur var settur upp um helgina. „Mosinn kemur frá Noregi og rósirnar frá Frakklandi. Þetta er upprunalega lifandi en hefur verið meðhöndlað til þess að „lifa“ svona,“ segir Ari Thorlacius, framkvæmdastjóri Duck & Rose.
Matargerð veitingahússins verður undir frönskum og ítölskum áhrifum. „Við verðum með andarétti í aðalhlutverki. Bæði sem forrétti, aðalrétti og smárétti. Á seðlinum verða líka gourmet-pitsur með spennandi áleggi og skemmtilegum ostum.“ Matargerðin verður því mjög fjölbreytt en matseðillinn samanstendur einnig af bláskel, humri, ostum og steikaúrvali, svo fátt eitt sé nefnt. „Milli tíu og tólf verðum við með happy hour á kokkteilum og rósakampavíni. Þá hækkar tónlistin og það verður stemning.“ Rósahlutinn sem vísað er í, í nafni staðarins, skapast svo með rósakampavíni og rósavíni. „Við stefnum á að skapa rósavínsstemningu hérlendis með góðu rósavíni, en það er oft vanmetið,“ segir Ari. Rósavín er ákaflega vinsælt víða erlendis og er til dæmis mjög vinsælt í Frakklandi og þá sérstaklega yfir sumartímann.
Ari segir hönnun staðarins verða gífurlega flotta og grípandi. „Hanna Stína innanhússarkitekt hefur verið okkur innan handar. Það er erfitt að sameina margar hugmyndir og Hanna Stína kom þar sterk inn með alla sína reynslu. Hennar innlegg hefur verið okkur dýrmætt.“ Hanna Stína Ólafsdóttir er einn vinsælasti innanhússarkitekt landsins og þekkt fyrir skemmtilegar litasamsetningar og speglanotkun.
„Við erum að sérpanta rósamosavegg frá Ítalíu sem verður mjög flottur. Þetta verður mjög myndvænn staður,“ segir Ari, en staðurinn verður opinn frá hádegi alla virka daga og mun útisvæðið án efa verða vinsælt, enda ófáir Íslendingar sem venja komur sína á Austurvöll á sumrin. Á kvöldin breytist staðurinn svo að öllum líkindum í Instagram-væna kokkteilparadís.