Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir hefur verið grænkeri síðan 2016. Hún heldur úti vinsæla matarblogginu Grænkerar.is og samnefndri Instagram-síðu. Hún deilir með okkur nokkrum uppskriftum sem er tilvalið að útbúa fyrir kaffið um helgina. Það er gott að æfa sig í heimboðsbakstri þar sem það styttist í að samkomubanni ljúki.
„Þessi karamelluostakaka er syndsamlega góð. Þetta er svona kaka sem maður stelst í um miðja nótt þegar enginn sér til. En þrátt fyrir hvað kakan er dásamlega bragðgóð er hún líka svo holl! Kakan er næringarrík og saðsöm en helsta hráefnið eru hnetur. Fyllingin er mild, létt og örlítið loftkennd þannig að hún bráðnar í munninum. Kremið efst er aftur á móti bragðmikil karamella sem allir ættu að falla fyrir. Auðvelt er að breyta uppskriftinni í glúteinlausa paleo köku með því að sleppa rjómaostinum en kakan er líka mjög góð án hans.
Í flestum sambærilegum uppskriftum er talað um að láta kasjúhnetur liggja í bleyti í fleiri klukkustundir eða yfir nótt. Ég hef persónulega aldrei haft þolinmæði í það og set þær því vanalega beint í blenderinn. Það tekur örlítið lengri tíma að ná silkimjúkri áferð en annars finn ég engan mun. Mér finnst mikilvægt að nota bragð- og lyktarlausa kókosolíu í uppskriftina annars getur kókosolíu bragðið orðið mjög afgerandi.
Til að fyllingin stífni almennilega (og fái dásamlega áferð) nota ég töfraefnið agar-agar. Ég uppgötvaði þetta frábæra duft fyrir um ári síðan og nota það núna oft í viku.
Kakan er ótrúlega falleg og sómir sér vel í veislum. Ef afgangur verður af kökunni mæli ég með að skera hana í sneiðar og geyma í frysti. Það er svo þægilegt að geta gripið sneiðar úr frystinum en þær þurfa nokkrar mínútur til að þiðna. Mér finnst kakan langbest með þeyttum vegan rjóma (t.d. frá Soyatoo) og ferskum jarðarberjum og skornum banönum.“
Botn
1 dl pekanhnetur
2 dl möndlur
6 ferskar döðlur, muna að taka steinana úr
2 tsk kókosolía, bragð- og lyktarlaus
Salt
Fylling
3 dl kasjúhnetur
8 ferskar döðlur
½ dl hlynsíróp, má vera minna ef vill
1 dl kókosolía
1 dl rjómaostur, t.d. Oatly smurosturinn
2 dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn
1 tsk vanilludropar
1 tsk sítrónusafi
Salt
3 dl vatn
1 tsk agar-agar duft
Karamellukrem
½ dl hlynsíróp
½ dl kókossykur eða hrásykur
½ kókosolía
1,5 dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn
1 tsk vanilludropar
Salt
Botn
Fylling
Karamellukrem