Iceland hefur innkallað pizzurnar „No Cheese Houmous Style Pizza 284g“ og „No Cheese Mediterranean Pizza 382g“. Pizzunar eru merktar sem vegan en gætu innihaldið snefilmagn af mjólkurvörum. Búið er að upplýsa heilbrigðiseftirlitið um vörurnar.
„Iceland harmar að varan hafi komist í umferð og mun fara yfir verkferla til þess að koma í veg fyrir rangt merktar vörur fari i umferð,“ kemur fram í tilkynningu frá Iceland.
Viðskiptavinir Iceland geta skilað vörunni gegn endurgreiðslu í öllum verslunum Iceland.