Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, deildi með okkur á dögunum hvað hún borðar á venjulegum degi. Hér deilir hún uppskrift að ofureinföldum kjúklingatortillum sem krakkarnir elska.
Sjá einnig: Þetta borðar Kristín Soffía á venjulegum degi
Hráefni
1 bakki úrbeinuð kjúklingalæri
2 paprikur
1 laukur
Slatti af góðri ólífuolíu
Krydd: 1 msk. cumin, 1 msk. paprika, 1 tsk. kóríander, salt
Meðlæti
Litlar tortillakökur
Spínatkál
Kirsuberjatómatar
Avókadó
Sýrður rjómi
Rifinn ostur
Smá kreista af lime
Aðferð
- Kjúklingur, paprika og laukur fara saman í eldfast mót og er velt saman með góðri ólífuolíu og kryddi.
- Formið fer svo inn í 200 gráðu heitan ofn í 30 mínútur.
- Á meðan ofninn sinnir eldamennskunni sker ég niður grænmeti. Það er hægt að setja hvað sem er með í kökurnar, við setjum spínatkál, kirsuberjatómata og avókadó.
- Þegar fimm mínútur eru eftir af eldunartíma pakka ég tortillakökunum inn í álpappír og skelli inn með til að hita þær aðeins.
- Þá er ekkert eftir annað en að raða því sem að hver og einn vill í kökurnar. Auk grænmetisins er ég með rifinn ost, sýrðan rjóma og niðursneitt lime.