fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Matur

Varúð – Aðeins fyrir nautnaseggi á jólum – Sjáið uppskriftirnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Sunnudaginn 22. desember 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú nálgast jólin óðfluga og ekki seinna vænna að leiða hugann að gómsætum eftirrétti. Hér fara á eftir þrjár tertur sem eru eingöngu fyrir nautnaseggi þessa lands.

Fullt af jarðarberjum Þau eru möst ofan á vanillukremið.

Súkkulaðikaka með guðdómlegu vanillukremi

Brúnka:

3/4 bolli olía
1 tsk. vanilludropar
1 1/4 bolli sykur
3 egg
3/4 bolli hveiti
1/2 bolli kakó
1/2 tsk. lyftiduft
smá sjávarsalt

Vanillukrem:

1 dós sæt mjólk (sweetened condensed milk) – tæplega 400 ml
1 pakki Royal-vanillubúðingur
1/2 bolli kalt vatn
1 bolli rjómi
jarðarber (til að skreyta með)

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C. Nú getið þið annaðhvort tekið til form sem er 18 sentímetra stórt eða 22 sentímetra. Ef þið veljið 18 sentímetra formið þá verður botninn þykkari, og þá er tilvalið að skera botninn í tvennt og búa til tvö lög með kremi á milli og ofan á. Ég valdi 22 sentímetra form og hafði kökuna einfalda. En munið að smyrja formið vel. Blandið olíu, vanilludropum, sykri og eggjum vel saman í lítilli skál og setjið til hliðar. Blandið öllum þurrefnunum vel saman í stórri skál og blandið síðan blautefnunum smátt og smátt saman við. Ekki hræra of mikið, þá verður brúnkan ekki dásamlega blaut og djúsí. Setjið deigið í form og bakið í sirka 20 mínútur (22 sentímetra form) eða 25–30 mínútur (18 sentímetra form). Kakan má vera aðeins blaut þegar hún er tekin úr ofninum. Leyfið kökunni alveg að kólna áður en hún er skreytt.

Þá er það vanillukremið. Blandið sætri dósamjólk og vatni vel saman í skál. Hrærið vanillubúðingnum saman við og hrærið þar til blandan byrjar að þykkna, í um eina mínútu. Setjið inn í ísskáp. Þeytið rjómann. Takið búðingsblönduna úr ísskápnum og blandið rjómanum varlega saman við. Skellið þessu aftur inn í ísskáp á meðan brúnkan kólnar. Skreytið brúnkuna með kreminu og fullt, fullt af jarðarberjum.

Rugluð Ein sneið af þessari er nóg.

Svaðaleg Snickers-kaka

Botn:

3/4 bolli salthnetur
1 bolli hveiti
2 msk. púðursykur
1/2 tsk. sjávarsalt
115 g kalt smjör (skorið í teninga)
smá vatn (ef þarf)

Epli:

4 meðalstór epli (afhýdd og skorin í teninga)
2 msk. smjör
1/2 msk. ferskur sítrónusafi

Hnetukaramella:

1 bolli sykur
6 msk. smjör
1/2 bolli rjómi
1 tsk. sjávarsalt
1 bolli salthnetur

Núggat:

1 dós Marshmallow Fluff (Sykurpúðakrem)
1 bolli flórsykur
1/4 bolli hnetusmjör

Súkkulaðitoppur:

170 g mjólkursúkkulaði
1 msk. hnetusmjör (kúffull)

Aðferð:

Botn – Hitið ofninn í 175°C og takið til hringlaga form, sirka 22 sentímetra stórt. Smyrjið það lauslega með smjöri eða bökunarspreyi. Setjið salthnetur í matvinnsluvél og malið þar til þær líkjast mjöli. Blandið síðan hveiti, púðursykri og salti vel saman við. Brytjið smjörið út í hveitiblönduna og vinnið smjörið í deigið með höndunum. Þetta tekur smá tíma en útkoman ætti að vera fallegt og massíft deig. Ef það er of þurrt má bæta smá ísköldu vatni saman við, en bara einni matskeið í einu. Þrýstið deiginu í botninn og upp hliðarnar á forminu og setjið í frysti í um tíu mínútur. Nú, eða lengur ef ekki er von á gestum alveg strax. Setjið smjör- eða álpappír ofan á botninn og smellið einhverju þungu ofan á sem þolir hitann í ofninum. Margir eiga sérstök baksturslóð til þess, en ég nota bara nokkur, lítil kökuform, sem ég þyngi með til dæmis hrísgrjónum. Þetta er gert svo botninn blási ekki út. Bakið botninn svona í tuttugu mínútur. Takið síðan smjör- eða álpappírinn af, sem og lóðin, og bakið í 10 til 15 mínútur til viðbótar. Leyfið botninum alveg að kólna áður en einhverju er skellt á hann.

Epli – Bræðið smjör á pönnu við meðalhita. Steikið síðan eplin í 5–7 mínútur, eða þar til þau eru mjúk. Takið pönnuna af hellunni og blandið sítrónusafanum saman við. Leyfið eplunum að kólna áður en þeim er dreift yfir botninn.
Hnetukaramella – Bræðið sykur á pönnu yfir meðalhita og hrærið stanslaust í honum. Fyrst mun hann verða að kögglum og síðan bráðna í ljósbrúna blöndu. Þegar sykurinn er bráðnaður bætið þið smjörinu út í og hrærið áfram stanslaust. Passið ykkur því blandan mun bubbla og láta illa þegar smjörið snertir sykurinn. Hrærið þar til allt smjörið er bráðnað og búið að blandast saman við sykurinn. Hér er gott að nota písk. Hellið síðan rjómanum varlega út í á meðan þið hrærið en blandan mun aftur láta illa. Leyfið þessu að sjóða í um eina mínútu en haldið áfram að hræra stanslaust. Takið pönnuna af hellunni og blandið salthnetum og salti saman við. Hellið sósunni í skál og leyfið henni að ná stofuhita. Hellið henni síðan yfir eplin og kælið herlegheitin í ísskáp í um hálftíma.

Núggat – Blandið öllum hráefnunum vel saman í skál þar til blandan helst vel saman, en er örlítið klístruð. Dreifið núggatinu jafnt yfir karamellusósuna og setjið inn í ísskáp á meðan súkkulaðibráðin er búin til.

Súkkulaðitoppur – Setjið súkkulaði og hnetusmjör saman í skál sem þolir örbylgjuofn. Hitið þetta í þrjátíu sekúndur í einu og hrærið á milli þar til allt er bráðnað og blandað saman. Hellið súkkulaðitoppinum yfir núggatið og skreytið jafnvel með söxuðum salthnetum og karamellukurli.

Elskar þú bingókúlur? Þá er þessi málið.

Rosaleg Bingókúlukaka

Bingókúlusósa:

150 g Bingókúlur (1 poki)
1/2 bolli rjómi

Kökubotnar:

2 bollar hveiti
1/2 bolli kakó
1/2 bolli lakkrísduft
1 tsk. lyftiduft
1 1/2 tsk. matarsódi
1 1/2 bolli sykur
1/2 bolli púðursykur
1 bolli grísk jógúrt
3/4 bolli olía
2 tsk. vanilludropar
3 egg
3/4–1 bolli sjóðandi heitt vatn

Krem:

200 g mjúkt smjör
400 g flórsykur
100 g hvítt súkkulaði (brætt)
1 tsk. vanilludropar

Aðferð

Bingókúlusósa – Setjið Bingókúlur og rjóma í pott og bræðið yfir vægum hita. Fylgist með blöndunni og hrærið reglulega í henni. Takið pottinn af hellunni þegar allt er bráðnað saman og leyfið sósunni að kólna alveg.

Kökubotnar – Byrjið á því að setja vatn í pott og ná upp suðu á meðan þið búið til deigið. Hitið ofninn í 180°C og takið til tvö, hringlaga 18 sentímetra form. Setjið smjörpappír í botninn og smyrjið hliðarnar með olíu eða smjöri. Blandið öllum þurrefnum vel saman. Bætið síðan jógúrt, olíu og vanilludropum saman við og því næst eggjunum, einu í einu. Hrærið vel. Blandið sjóðandi heitu vatninu varlega saman við og hrærið þar til allt er blandað saman. Deilið deiginu á milli kökuformanna og bakið í um það bil hálftíma. Leyfið kökunum að kólna aðeins í formunum áður en þið takið þær úr þeim. Leyfið botnunum síðan alveg að kólna áður en kremið er sett á.

Krem – Þeytið smjörið í 3–5 mínútur og bætið síðan restinni af hráefnunum saman við og þeytið vel.

Svona er kakan sett saman: Smyrjið nokkrum matskeiðum af bingókúlusósunni ofan á annan botninn. Setjið síðan krem á hann og hinn botninn ofan á. Hyljið kökuna með hvíta kreminu. Setjið síðan bingókúlusósuna í sprautu með mjóum stút og byrjið á því að sprauta sósunni á kantana og leyfa henni að leka niður hér og þar. Síðan hyljið þið toppinn á kökunni með sósunni. Og skreytið að vild!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa