Ticker Matur

Matur

Fullkominn ofnbakaður kjúklingur sem bragð er að

Mynd
Virkilega bragðgóður kjúklingur.

Það er ofureinfalt að ofnbaka kjúkling og hægt að skreyta hann með alls kyns meðlæti þegar hann er borinn fram. Þessi ofnbakaði kjúklingur er afskaplega bragðsterkur og góður - fullkominn helgarmatur.

Ofnbakaður kjúklingur

Hráefni:

1 msk. púðursykur
1 tsk. hvítlaukskrydd
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. salt
1 tsk. svartur pipar
ólífuolía
4 kjúklingabringur
1 sítróna, skorin í sneiðar
fersk steinselja, grófsöxuð

Aðferð:

Hitið ofninn í 190°C. Blandið sykri, hvítlauk, papriku, salti og pipar saman í skál. Drissið ólífuolíu yfir kjúklingabringurnar. Kryddið þær með kryddblöndunni þannig að bringurnar séu huldar í blöndunni. Raðið sítrónusneiðum á ofnplötu og raðið kjúklingabringunum ofan á þær. Bakið í um 25 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Pakkið bringunum inn í álpappír og leyfið þeim að hvíla áður en þær eru bornar fram. Skreytið með steinselju og njótið.