fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Matur

Skref fyrir skref: Fiskisúpa með kókos, chilli og túrmerik

Erla eldar
Föstudaginn 26. október 2018 13:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi uppskrift er fyrir sex til átta manns.

Fiskisúpa með kókos, chilli og túrmerik

Hráefni:

1 rauðlaukur
2 pokar gulrætur
½ fennel
u.þ.b. 2 cm engifer
2 chilli
4 hvítlauksrif
1 lemongras
2 msk. tómatpúrra
1 tsk. rautt karrý paste
1 msk. túrmerik
2 dl hvítvín
1 L fiskisoð
500 ml rjómi
800 ml kókosmjólk
400 g lax
300 g hörpuskel
800 g risarækjur
kóríander og vorlaukur (má sleppa)

Aðferð:

Skerið niður rauðlauk og hvítlauk, chilli, engifer og fennel og steikið uppúr olíu við meðal háann hita þar til laukurinn er farinn að mýkjast.

Bætið við gulrótum og steikið áfram í um það bil 5 til 10 mínútur.

Bætið næst við tómatpúrru, karrý paste, túrmerik og lemongras og steikið allt saman í 5 mínútur í viðbót og bætið síðan við hvítvíninu og látið sjóða niður um um það bil helming og bætið síðan við fiskisoðinu.

Þegar þetta hefur allt fengið að sjóða vel saman er gott að bæta við rjómanum og kókosmjólkinni. Látið malla við vægan hita í allavegana 1 klukkustund.

Rétt áður en þið berið súpuna fram bætið sjávarréttunum útí og látið sjóða í um það bil 5 mínútur. Berið súpuna síðan fram með ferskum kóríander og vorlauk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Matur
29.03.2024

Þessar matartegundir er hjálplegt að borða áður en þú ferð að djamma

Þessar matartegundir er hjálplegt að borða áður en þú ferð að djamma
Matur
18.03.2024

Rjómalagað pasta með kjúkling og sveppum

Rjómalagað pasta með kjúkling og sveppum
Matur
18.11.2023

„Sælkerar landsins! Sjá ég færi ykkur fögnuð“

„Sælkerar landsins! Sjá ég færi ykkur fögnuð“
Matur
05.11.2023

Guðdómleg perubaka

Guðdómleg perubaka