fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Kynning

NÝR PEUGEOT 100% HREINN RAFBÍLL FRUMSÝNDUR LAUGARDAGINN 15. FEBRÚAR

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 10. febrúar 2020 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

NÝR PEUGEOT e-208 100% HREINN RAFBÍLL
Brimborg frumsýnir glænýjan Peugeot e-208 100% hreinan rafbíl með 340 km drægni og engri CO2 losun. Peugeot e-208 rafbíll er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti. Með  þessu afli kemst Peugeot e-208 frá 0 upp í 100 á 8,1 sekúndu. Glænýr undirvagn Peugeot e-208 er hannaður með innbyggðri 50 kwh rafhlöðu svo að innra rýmið er jafnstórt og í hefðbundnum Peugeot 208. Peugeot e-208 rafbíll er með fimm ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

340 KM DRÆGNI Á 100 % RAFMAGNI, EINFÖLD OG HRÖÐ HLEÐSLA
Peugeot e-208 100% rafbíll er með 50 kWh rafhlöðu og drægni hennar skv. WLTP mælingu er 340 km. Rafhlaðan er staðsett undir miðjum bílnum og hefur því ekki áhrif á farþega- og skottrými. Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-208 rafbíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum.  Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð eða í 80% hleðslu á aðeins 30 mínútum í 100 kW hraðhleðslustöð. Peugeot ábyrgist 70% hleðslugetu rafhlöðunnar í 8 ár eða 160.000 km. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot® appinu ásamt því að stilla forhitarann svo bíllinn  sé heitur og fínn áður en lagt er af stað. 

ÓMÓTSTÆÐILEG HÖNNUN OG NÆSTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI
Hönnun nýja Peugeot e-208 hefur hlotið einróma lof fyrir ómótstæðilega hönnun og ríkulegan staðalbúnað. Að innan er nútímaleg i-Cockpit innrétting í lykilhlutverki með nýjustu kynslóð af tækni og stafrænu 3D mælaborði þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu ökumanns. 

FULLKOMIN ÖRYGGISTÆKNI
Peugeot e-208 100% rafbíllinn er með nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoða ökumann við aksturinn og tryggir örugga ökuferð. Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, aðlögunarhæfur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun (Active City Break) og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi um öryggisbúnað í rafbílnum Peugeot e-208. 

Nýr Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll verður frumsýndur í Brimborg Reykjavík laugardaginn 15. febrúar frá 12-16. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða á staðnum og eins verður í boði ráðgjöf varðandi hleðslu rafbíla og uppsetningu hleðslustöðva.

Sala rafbíla hefur farið vaxandi víða um heim og því verður takmarkað magn í boði á Íslandi en Brimborg hefur tryggt ákveðinn fjölda bíla sem eru nú til sölu í nýjum vefsýningarsal á brimborg.is. en forsalan hefur farið feikivel af stað. Nú eru fyrstu bílar komnir á lager og eru þeir fáanlegir í  þremur útfærslum. 

Peugeot e-208 100% rafbíll kostar frá 3.790.000 kr. Nánari upplýsingar er á finna á vef Peugeot á Íslandi.

Smelltu hér til að kynna þér allt um Peugeot e-208!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea